Nýliðarnir skotnir niður á jörðina í Eyjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2013 20:02 Shaneka Jodian Gordon. Mynd/Valli
Nýliðar HK/Víkings voru nálægt því að vinna Breiðablik í 1. umferð Pepsi-deildar kvenna en þær áttu ekki möguleika í öðrum leik sínum í Vestmannaeyjum í kvöld. Heimastúlkur í ÍBV komust í 3-0 eftir 11 mínútur og unnu að lokum fimm marka sigur, 7-2. Shaneka Jodian Gordon skoraði þrennu fyrir ÍBV. Shaneka Jodian Gordon skoraði tvö fyrstu mörk leiksins, á 7. og 9. mínútu, og Rosie Sutton bætti síðan við þriðja markinu á 11. mínútu. Það var því strax ljóst í hvað stefndi. Lið HK/Víkings var 3-1 yfir á móti Breiðabliki í 1.umferðinni þegar aðeins hálftími var eftir en tapaði leiknum 3-4. Hrunið á lokakaflanum í fyrstu umferð virtist greinilega há liðinu á fyrstu mínútum leiksins á Hásteinsvellinum. Bryndís Jóhannesdóttir skoraði fjórða markið á 38. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Bryndís Hrönn Kristinsdóttir skoraði fimmta markið í upphafi seinni hálfleiks og Ana Maria Escribano Lopez var búin að koma ÍBV í 6-0 á 62. mínútu. Íris Dóra Snorradóttir og Karen Sturludóttir náði að minnka muninn fyrir HK/Víking í lokin en inn á milli þeirra marka innsiglaði Shaneka Jodian Gordon þrennu sína. Eyjakonur fögnuðu þar með sínum fyrsta sigri í sumar og Eyjaliðin hafa unnið fyrstu þrjá heimaleiki sumarsins. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Sjá meira