Njarðvík vann í framlengdum leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. mars 2013 21:07
Njarðvík vann nauman sigur á Tindastóli, 103-98, í æsispennandi leik á Sauðárkróki í kvöld. Stólarnir byrjuðu betur og höfðu forystu eftir fyrri hálfleik, 51-46. Það var minna skorað í seinni hálfleik og Njarðvík jafnaði leikinn í fjórða leikhluta. Bæði lið fengu tækifæri til að komast yfir á lokamínútu leiksins en að lokum þurfti að grípa til framlengingar. Ungu mennirnir Elvar Már Friðriksson og Maciej Baginski komu sterkir inn í framlengingunni. Baginski skoraði mikilvægan þrist og Elvar jók muninn í fimm stig í næstu sókn. Tindastóll náði ekki að jafna leikinn eftir þetta en Helgi Freyr Margeirsson minnkaði muninn í eitt stig með þriggja stiga körfu þegar fjórtán sekúndur voru eftir. En Njarðvík fékk tækifæri eftir það til að klára leikinn á vítalínunni, sem og liðið gerði. Drew Gibson klikkaði á þriggja stiga skoti í lokasókn heimamanna og úrslitin þar með ljós. Nigel Moore skoraði 32 stig fyrir Njarðvík og Elvar Már 22 stig. Gibson skoraði 25 stig fyrir Tindastól og George Valentine 22.Tindastóll - Njarðvík 103-98 (51-46)Tindastóll: Drew Gibson 25/16 stoðsendingar, George Valentine 22/16 fráköst, Svavar Atli Birgisson 14/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 11/7 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 10, Hreinn Gunnar Birgisson 7/7 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 6, Þröstur Leó Jóhannsson 3.Njarðvík: Nigel Moore 32/11 fráköst/6 stolnir, Elvar Már Friðriksson 22/6 fráköst/5 stoðsendingar, Ágúst Orrason 13, Marcus Van 12/13 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 8/4 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 7, Friðrik E. Stefánsson 4, Hjörtur Hrafn Einarsson 3, Óli Ragnar Alexandersson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira