Fyrri keppnishelgi Reykjavíkurleikanna heppnaðist vel 21. janúar 2013 13:45 Mynd/Heimasíða Rig
Fyrri keppnishelgi Reykjavíkurleikanna 2013 fór fram um helgina og endaði með sundlaugapartý og uppskeruhátíð í Laugardalslaug. Keppendur á Reykjavíkurleikunum 2013 eru tæplega 2.500 talsins en þar af eru 362 erlendir. Mörg met voru slegin og góður árangur náðist í öllum mótshlutum um helgina en mótinu lýkur síðan um næstu helgi. Um helgina var keppt í 8 íþróttagreinum og er eftirfarandi stutt samantekt frá mótshöldurum um helstu úrslitum í hverri grein.Sund fatlaðra Sannkallað metaregn var í sundkeppni fatlaðra um helgina því slegin voru 14 Íslandsmet. Flest Íslandsmet slógu þau Jón Margeir Sverrisson, Thelma Björg Björnsdóttir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir eða fjögur met hver. Stigahæstu sundmennirnir voru Ólympíumótsfarinn Jón Margeir Sverrisson og Pernilla Lindberg frá Svíþjóð.Frjálsíþróttir Besta afrek mótsins í frjálsíþróttum átti Aníta Hinriksdóttir en hún setti glæsilegt Íslandsmet í 800 m hlaupi og náði lágmarki á EM innanhúss. Stigahæsti karl keppninnar var Kevin Stadler frá Þýskalandi en hann keppti líka í 800 m hlaupi eins og Aníta.Badminton Sigurvegarar í elsta flokki badmintonkeppninnar voru þau Stefán Ás Ingvarsson og Margrét Jóhannsdóttir. Þau sigruðu bæði tvöfalt þ.e. í einliða- og tvíliðaleik en Margrét vann einnig silfurverðlaun í tvenndarleik.Fimleikar Keppt var í hópfimleikum á Reykjavíkurleikunum um helgina. Evrópumeistarar Gerplu sigruðu í kvennaflokki en lið Stjörnunnar fylgdi fast á hæla þeirra og varð í öðru sæti og Selfoss í því þriðja. Gerpla sigraði einnig í karlaflokki en lið Ármanns í blönduðum liðum.Kraftlyftingar Keppt var í bekkpressu í kraftlyftingakeppni Reykjavíkurleikanna. Keppnin var tvískipt, annarsvegar Íslandsmót og hinsvegar alþjóðlegt mót. Íslandsmeistarar urðu Fanney Hauksdóttir og Sigfús Fossdal en Sigfús sló Íslandsmet þegar hann lyfti 305 kg. Alþjóðlegu keppnina sigruðu Hildeborg Hugdal heimsmethafi og heimsmeistari og Alastair McColl silfurverðlaunahafi frá EM í bekkpressu.Taekwondo Margir erlendir íþróttamenn tóku þátt í taekwondokeppni Reykjavíkurleikanna en greinin var nú í fyrsta sinn hluti af leikunum. Keppt var í fjölmörgum þyngdarflokkum á mótinu. Í svokölluðum „best of best" bardaga mættust Daníel Jens Pétursson frá Selfossi og Serbinn Damir. Damir keppti á Ólympíuleikunum í London og hafnaði þar í 5.sæti og því erfiður mótherji fyrir íslenska landsliðsmanninn. Daníel Jens náði að standa vel í hárinu á Damir en beið þó lægri hlut 7-9.Listhlaup á skautum Stigahæsti keppandinn í listhlaupi á skautum var Vala Rún B. Magnúsdóttir. Í frjálsa prógramminu fékk hún hæstu einkunn sem hún hefur náð á sínum ferli, 94.94 stig. Þessi einkunn er glæsilegur árangur og með því besta sem sést hefur hjá íslenskum listskautara. Upplýsingar um sigurvegara í öllum flokkum keppninnar má finna á vef Skautafélags Reykjavíkur: http://skautafelag.is/list/?id=6849Júdó Rússar og Danir voru sigursælir í júdókeppni Reykjavíkurleikanna sem jafnframt var 40 ára afmælismót Júdósambands Íslands. Keppnin í opnum flokki karla var sérstaklega skemmtileg en þar sigraði Rússinn Victor Semenov. Hann mætti Ólympíufaranum Þormóði Jónssyni í úrslitaglímu og sigraði með armlás en Þormóður hafði áður unnið Tékkann Michal Krpalek í hörku glímu. Bæði Krpalek og Semenov hafa unnið fjölda alþjóðlegra móta og því var keppnin á heimsmælikvarða.Það er margt spennandi framundan á Reykjavíkurleikunum 2013 í næstu viku. Fimmtudaginn 24.janúar verður ráðstefna um afreksþjálfun haldin í Háskólanum í Reykjavík í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Þrír erlendir fyrirlesarar munu þar flytja áhugaverð erindi. Föstudaginn 25.janúar fer fram keppni í kynningargrein leikanna sem eru hjólreiðar. Keppnin verður hjólreiðaeinvígi upp Skólavörðustíginn. Um næstu helgi verður síðan keppt í 10 íþróttagreinum auk þess sem haldin verður lokahátíð leikanna.
Íþróttir Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Fleiri fréttir „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Sjá meira