Perlan skín enn Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. apríl 2012 08:00
Bíó. Titanic. Leikstjórn: James Cameron. Leikarar: Leonardo DiCaprio, Kate Winslet, Billy Zane, Gloria Stuart, Bill Paxton, Frances Fisher, Kathy Bates, Danny Nucci, David Warner. Árið 1997 var stórmyndin Titanic frumsýnd, en hún varð fljótt tekjuhæsta kvikmynd allra tíma og sópaði að sér öllum helstu verðlaunum sem hægt var að fá. Í myndinni tvinnaði leikstjórinn James Cameron saman raunveruleika og skáldskap, og segir hún frá forboðinni ást tveggja ungmenna um borð í farþegaskipinu RMS Titanic, en um þessar mundir eru liðin 100 ár síðan þetta sögufræga skip fórst í jómfrúarsiglingu sinni eftir árekstur við ísjaka. Af því tilefni er myndinni nú varpað aftur á tjaldið hvíta, og í þetta sinn í þrívídd. Með tíð og tíma hefur það færst í aukana að fólk geri grín að myndinni og tali hana niður. Hún sætir ásökunum um langdregni og væmni, og sykurhúðað stafastef Céline Dion er ofspilað barn síns tíma. Þá hefur margoft verið vísað í ýmis atriði myndarinnar í þágu sprells, og af þeim sökum er til dæmis ómögulegt að horfa á þau Ljónharð og Kötu leika flugvél í stafni skipsins án þess að flissa í hljóði. En takist manni að leiða hjá sér lummulegustu atriðin stendur traustbyggð mynd eftir (án þess að ég fari út í fyrirsjáanlegt líkingamál um hrákasmíðina RMS Titanic). Sjálfur skipsskaðinn er gífurlegt sjónarspil og þó að tæknibrellurnar séu 15 ára gamlar þá eldast þær ágætlega. Þrívíddin er smekklega unnin og mínimalísk en spilar stærra hlutverk í seinni hlutanum. Winslet er glæsileg og hleypir lífi í það sem hefði auðveldlega getað orðið þreytt steríótýpa, og mikið ofboðslega er DiCaprio myndarlegur. Hann var líka fínn leikari, þótt hann sé enn betri í dag. Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upphafi síðustu aldar, en er um leið góð heimild um áherslur í kvikmyndagerð undir lok hennar. Einlægnin var meiri, kaldhæðnin minni og Leonardo DiCaprio var miklu sætari. Og að sjá hann svona í þrívídd er það næsta sem þú kemst því að knúsa hann í alvörunni. Er hægt að selja þetta betur? Niðurstaða: Titanic stenst tímans tönn. Taktu með þér tissjú og ekki skammast þín fyrir neitt.
Mest lesið Þéna töluvert þrátt fyrir að vera ekki til Lífið Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Bíó og sjónvarp Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Tónlist Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Tónlist Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Lífið Krakkatían: Grænland, galdrakarl og Greppikló Lífið Verð alltaf stoltari og stoltari af mömmu Lífið Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi Lífið „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Lífið Erling og Sigríður selja húsið eftir átján ár Lífið Fleiri fréttir Illa bruggaðar Guðaveigar Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Brostnar væntingar á Frostrósum Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Bríet olli vonbrigðum Sjá meira