Rick Santorum dregur sig úr kosningabaráttunni 11. apríl 2012 01:00 rick santorum Frambjóðandinn tilkynnti að hann væri hættur að sækjast eftir útnefningu flokksins í Gettysburg í gær. fréttablaðið/Ap
Nánast er öruggt að Mitt Romney verði forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, eftir að Rick Santorum dró sig út úr kosningabaráttunni í gær. Santorum tilkynnti um ákvörðun sína í Gettysburg í gær. Hann sagði að framboði sínu væri lokið og kosningabaráttunni hætt. „Við munum halda áfram að berjast og sigra Barack Obama forseta," sagði Santorum, sem stóð á sviðinu ásamt fjölskyldu sinni. Hann hafði vonast til þess að halda áfram fram yfir forkosningarnar í Pennsylvaníu 24. apríl en ákvað að hætta nú vegna veikinda þriggja ára gamallar dóttur sinnar. Santorum sagðist hafa komist lengra með framboð sitt en nokkur hefði átt von á. Athygli vakti að Santorum lýsti ekki yfir stuðningi við Romney eða minntist yfirhöfuð á hann í ræðu sinni. Romney brást við fréttunum í gær og sagði Santorum hafa verið hæfan og verðugan keppinaut. Fátt virðist nú geta stöðvað Romney í því að hljóta útnefningu flokksins á flokksráðstefnunni í ágúst. Hann er með helmingi fleiri kjörmenn en Santorum, sem var næsti maður á eftir honum. Newt Gingrich sagðist í gær ekki ætla að draga sig í hlé, heldur gefa repúblikönum „alvöru valkost" í haust. Ron Paul er ekki heldur hættur í framboði. - þeb
Fréttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira