Lífið

Adele á Ólympíuleikunum

Hæfileikarík Adele hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir plötu sína 21 sem kom út í fyrra.
Hæfileikarík Adele hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir plötu sína 21 sem kom út í fyrra.
Fregnir herma að breska söngkonan Adele komi fram á lokahátíð Ólympíuleikanna, sem fram fara í London í sumar. Bresk tónlist verður í hávegum höfð á hátíðinni og The London Symphony Orchestra leikur undir. Þekktir breskir popparar, sem og nýir, verða fengnir til að flytja goðsagnakennda breska popptónlist.

Orðrómur hefur verið um að Rolling Stones, Paul McCartney og Spice Girls komi einnig fram en það hefur ekki fengist staðfest.

Adele hlaut sex Grammy-verðlaun fyrr í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.