Vilja kjósa um forystu 28. janúar 2012 07:00 forystan endurkjörin Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson voru endurkjörin formaður og varaformaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í nóvember. fréttablaðið/daníel
Hávær krafa er innan Samfylkingarinnar um að kosið verði um forystu flokksins á aukalandsfundi. Tillaga liggur fyrir flokksstjórnarfundi um landsfund í vor en reynt er að ná sátt um fund í haust. Landsdómsmálið verður rætt á flokksstjórnarfundi sem hefst í dag. Flokksstjórn Samfylkingarinnar hittist á fundi í dag. Dagskráin er þéttskipuð, ræða á verkefnin framundan, ríkisfjármál og atvinnumál fyrir hádegi, en eftir hádegi verða málstofur um ýmsa geira atvinnumála. Dagskráin mun þó án efa riðlast. Ljóst er að fjölmargir flokksmenn vilja ræða Landsdómsmálið. Þar liggur ekki aðeins undir málsmeðferðin, en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur verið gagnrýnd fyrir hana, meðal annars af ungliðahreyfingu flokksins. Efnisleg umræða um ákæru á hendur Geir H. Haarde mun einnig fara fram. Efnisatriði enn óræddÞingmenn Samfylkingarinnar voru ekki samstíga í kosningu sinni um ákæruna á hendur Geir. Sumir vildu engan ákæra, einhverjir alla og aðrir aðeins einn. Heimildarmenn Fréttablaðsins telja að flokkurinn eigi eftir að ræða um þessi mál. Aldrei hafi verið rætt til hlítar hver afstaðan var til ákæru, sem margir telja lið í uppgjöri við hrunið. Þá kusu fjórir þingmenn flokksins gegn frávísun á tillögu Bjarna Benediktssonar um að ákæran á hendur Geir H. Haarde verði afturkölluð. Það voru þau Árni Páll Árnason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Kristján L. Möller og Össur Skarphéðinsson. Að auki hefur Sigmundur Ernir Rúnarsson lýst því yfir að hann hefði gert eins, en hann var fjarverandi. Ljóst er að þessir þingmenn verða rukkaðir um skýringu á afstöðu sinni. Það má því búast við að fundurinn snúist að nokkru leyti um efnisatriði ákærunnar, þar sem afstaða til upphaflegrar ákæru verður einnig rædd. Vilja aukalandsfundFlokksstjórn fundaði síðast í desember, þegar Jóhanna Sigurðardóttir, formaður flokksins, skýrði frá breytingum á ráðherraliði flokksins. Á þeim fundi lögðu Andrés Jónsson, fyrrverandi formaður Ungra jafnaðarmanna, og fleiri fram tillögu um aukalandsfund. Samþykkt var að ræða hana á fundinum sem hefst í dag. Tillöguna á að ræða á eftir málefnastarfi í dag. Andrés segir að tillöguflytjendur séu að skoða það að draga tillöguna til baka, enda sé að nást sátt innan flokksins um landsfund í haust. „Það hefur verið komið að máli við okkur af hálfu aðila innan flokksins um það að draga tillöguna til baka gegn því að það verði sátt um að halda landsfund seint í haust." Andrés segir ekki endilega nauðsynlegt að samþykkja slíkan fund í dag, eins sé hægt að taka ákvörðun á fundi flokksstjórnar í vor. Fundinn verði hins vegar að halda. Gagnrýni á forystunaSegja má að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi opnað á gagnrýni á forystu flokksins. Það gerði hann í viðtali í áramótahefti Viðskiptablaðsins. Þar sagði Össur: „En það mun reynast flokki eins og Samfylkingunni, sem hefur þurft að taka margar mjög erfiðar ákvarðanir meðan unnið er úr hruninu, mjög erfitt að fara í gegnum næstu kosningar nema flokkurinn hafi náð að endurnýja sig, bæði forystuna og ekki síður hugmyndir sínar." Össur hefur verið spurður út í þessi orð sín á þingi, en hefur vikið sér undan því að svara. Þá hefur Jóhanna einnig verið spurð út í ummælin, en hún sagði á Alþingi á fimmtudag að hún hefði skýrt umboð flokksins frá síðasta landsfundi, sem haldinn var í nóvember. „Þar lagði ég upp verkefnalista sem ég er að fylgja eftir og ætla mér að gera til enda þessa kjörtímabils þannig að það er enginn bilbugur á mér. Ég veit ekki til annars en að ég hafi fullan stuðning míns flokks til að klára þau mál og þó að einhverjar vangaveltur séu hjá Össuri Skarphéðinssyni um einhverja framtíðarleiðtoga flokksins geri ég ekki mikið með það. Hann getur verið með sínar vangaveltur út og suður alveg eins og honum sýnist." Verður að kjósaÞeir sem leggja fram tillögur um landsfund í haust eru hins vegar sammála Össuri um að breytinga sé þörf. Andrés segir að nauðsynlegt sé að kosningar fari fram um forystuna fyrir næstu kosningar. „Við tökum ekki afstöðu til þess hvort formaður eða varaformaður eigi að víkja, en teljum að það verði að endurnýja." Það þýðir væntanlega nýtt fólk? „Já, já. Markmiðið með tillögunni var fyrst og fremst að opna fyrir þá umræðu og það hefur tekist svo um munar. Jóhanna mun ekkert humma þetta fram af sér fram í kosningabaráttuna," segir Andrés. Hann segir mikilvægt að kosningar um forystu verði í haust en ekki rétt fyrir kosningar, en reglulegan landsfund á að halda á vori komanda. Innri málefni flokksins verða því ofarlega á baugi á flokksstjórnarfundinum í dag, hvað sem skipuleggjendur hafa haft í huga.
Fréttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira