Arnar Þór hefur ekkert hugsað um landsliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2012 10:00 Arnar Þór Viðarsson í landsleik. Mynd/Nordicphotos/Bongarts
Arnar Þór Viðarsson er í fámennum hópi en aðeins 21 leikmaður á meira en 50 landsleiki að baki. Arnar hefur spilað 52 landsleiki á ferlinum en á þó ekki sérstaklega góðar minningar frá síðasta landsleik, en þá tapaði Ísland fyrir Liechtenstein ytra, 3-0. Eyjólfur Sverrisson hætti sem landsliðsþjálfari eftir leikinn og Arnar hlaut aldrei náð fyrir augum Ólafs Jóhannessonar, sem tók við. „Ég sé ekki eftir neinu og er mjög sáttur við minn feril," segir Arnar. „Það hefur aldrei skipt mig máli hvað öðrum finnst um mig – bara að fólkið sem þekkir mig og hefur unnið með mér sé sátt við mig." Lars Lagerbäck er nýtekinn við íslenska landsliðinu og með nýjum þjálfara koma ný tækifæri fyrir leikmenn. „Hver þjálfari velur sitt sterkasta lið hverju sinni. Ef ég er ekki hluti af því þá er það bara þannig," segir Arnar, sem hefur þó auðvitað sínar skoðanir á þessum málum. „Ég teldi það eðlilegt ef leikmaður sem væri búinn að vera í atvinnumennsku í öll þessi ár og enn að spila í hverri viku teldi sig nógu góðan fyrir landsliðið. En staðreyndin er sú að það eru 3-4 ár síðan ég talaði við landsliðsþjálfara síðast og ef kallið kæmi nú myndi ég bara skoða það. Ég hef ekki verið að velta þessum málum fyrir mér. Kannski hefur það hjálpað mér hjá mínu félagsliði að hafa ekki verið að spila og ferðast með landsliðinu á sama tíma."
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira