NBA í nótt: Miami tapaði gegn slakasta liðinu - Lakers tapaði á ný 5. desember 2012 08:15 LeBron James. AP
Washington Wizards, er slakasta liðið í NBA deildinni í körfuknattleik en þrátt fyrir þá staðreynd náði liðið að leggja meistaralið Miami Heat að velli í nótt, 105-101. Þetta var aðeins annar sigurleikur Washington í vetur. Taphrina LA Lakers heldur áfram en liðið tapaði 107-105 gegn Houston á útivelli þar sem að Kobe Bryan skoraði 39 stig. LeBron James var með 26 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar fyrir Miami Heat. Jordan Crawford var stigahæstur í liði Washington með 22 stig – þar af tvö vítaskot á síðustu 11 sekúndum leikins. James reyndi að jafna metin með þriggja stiga skoti sem geigaði 3,9 sek. fyrir leikslok. Washington hafði fyrir leikinn aðeins unnið einn leik eftir að hafa tapað fyrstu 12 leikjunum á tímabilinu. Heat er með 12 sigra og 4 tapleiki. Dwane Wade skoraði 24 stig fyrir Miamei, Chris Bosh bætti við 20 stigum fyrir meistaraliðið og tók að auki 12 fráköst.Brooklyn – Oklahoma 111-117 Kevin Durant scored skoraði 32 stig fyrir Oklahoma, og Russell Westbrook skoraði 25 fyrir gestina og gaf 9 stoðsendingar í sjötta sigurleik Oklahoma í röð. Oklahoma hefur skorað yfir 100 stig í 10 leikjum í röð og það hefur ekkert lið gert í 15 ár í NBA deildinni. Deron Williams skoraði 34 stig fyrir heimamenn – sem er met hjá honum á tímabilinu. Houston – LA Lakers 107-105Kobe Bryant í baráttunni gegn Jeremy Lin í Houston í nótt.APToney Douglas skoraði 22 stig fyrir Houston og Greg Smith skoraði 21 stig sem er persónulegt met hjá honum. Lakers var með 13 stiga forskot þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Kobe Bryant skoraði 39 stig fyrir Lakers en hann skoraði þriggja stiga körfu þegar 13 sekúndur voru eftir og minnkaði muninn í 106-105. Douglas svaraði með því að skora úr einu vítaskoti þegar 9 sekúndur voru eftir. Bryant tók þriggja stiga skot rétt fyrir leiksloka sem hann hitti ekki úr – Metta World Peace náði frákastinu en hann hitti ekki úr síðasta skoti leiksins. Dwight Howard skoraði 16 stig og tók 12 fráköst fyrir Lakers sem var án Pau Gasol og Steve Nash.Chicago – Indiana 76-80 Paul George skoraði 34 stig fyrir Indiana og Roy Hibbert skoraði 10 stig og tók 11 fráköst fyrir Indiana Þetta var þriðji tapleikur Chicago í röð.Memphis – Phoenix 108-98 Zach Randolph fór á kostum í liði Memphis þar sem hann skoraði 38 stig og tók 22 fráköst.Minnesota – Philadelphia 88-105
NBA Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira