Bendtner valdi sér ólukkunúmerið hjá Juventus Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2012 10:00 Nicklas Bendtner og Arsene Wenger. Mynd/Nordic Photos/Getty
Nicklas Bendtner er loksins búinn að finna sér lið en hann verður í láni hjá ítalska liðinu Juventus í vetur. Bendtner á tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal en á sér enga framtíð hjá Emirates og var búinn að vera að leita sér að liði í allt haust. Bendtner er nú kominn til ítölsku meistaranna í Juventus og gæti spilað sinn fyrsta leik í dag þegar liðið heimsækir Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni. Það vakti mikla athygli hjá ítölsku pressunni að danski framherjinn ákvað að velja sér númerið 17 á búninginn sinn en sautján er ólukkunúmer á Ítalíu. Ekki er ljóst hvort Bendtner sé að storka örlögunum eða hvort að hann vilji spila í sama númeri og Frakkinn David Trezeguet sem skoraði 135 mörk í 245 leikjum í þessu númeri með Juve á árunum 1999 til 2010. Það gekk vel hjá Trezeguet að storka örlögunum á Ítalíu og nú er að sjá hvernig gengur hjá danska landsliðsmanninum. Þetta er annað tímabilið í röð sem Bendtner fer á láni en hann var með 8 mörk í 29 leikjum með Sunderland á síðustu leiktíð.
Ítalski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Sjá meira