Fréttaskýring: Blóðugur bardagi Facebook við fjárfesta Magnús Halldórsson skrifar 21. ágúst 2012 13:11 Fjárfestar fylgjast grannt með gangi mála hjá Facebook þessi misserin, eftir missheppnaða skráningu á markað.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því samfélagsmiðillinn Facebook var skráður á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum, 18. maí sl. Gengi bréfa félagsins er tæplega 20 dalir á hlut en við skráningu var félagið verðmetið á 38 dali á hlut, eða næstum tvöfalt meira en verðlagning þess á markaði nú segir til um. Miðað við skráningargengið var félagið verðmetið á 104 milljarða dala, eða sem nemur liðlega 12.500 milljörðum króna. Nú er þessi verðmiði tæplega helmingi lægri eða sem nemur 6.500 milljörðum króna.Blóðugt Mikillar óánægju gætir meðal margra fjárfesta sem keyptu hlutabréf í Facebook í aðdraganda skráningar eða skömmu eftir að opnað var formlega fyrir viðskipti með bréfin í Nasdaq kauphöllinni. Bréfin voru seld alltof dýrt, og telja margir þeirra sem keyptu bréf að blekkingar hafi ráð för við verðlagningu á félaginu, og hafa spjótin m.a. beinst að fjárfestingabankanum JP Morgan Chase sem sá um útboðið fyrir hönd Facebook. Hefur deilum um þessi atriði verið líkt við blóðugan bardaga í fjölmiðlum. Í grein sem birtist í The New York Times í dag er haft eftir Dan Alpert, einum eiganda fjárfestingabankans Westwood Capital, sem tók ekki þátt í útboði með Facebook-bréfin, að það sem eftir standi nú er að forsvarsmenn Facebook geti sannfært markaðinn um að það geti hagnast á viðskiptum sínum til framtíðar litið. Markaðurinn er ekki sannfærður um það, segir Alpert. Ráðgjafafyrirtækið Morningstar segir þó í greiningu að hlutabréf Facebook séu orðin það ódýr að það muni hugsanlega borga sig að kaupa þau núna.Símar og Facebook-gjaldmiðill Forsvarsmenn Facebook, með stofnandann, framkvæmdastjórann og einn stærsta eigandann Mark Zuckerberg í broddi fylkingar, segjast þó ekki af baki dottnir. Þeir segja gríðarlega mikil tækifæri liggja í þeim mikla notendafjölda sem sé á Facebook, sem er um milljarður manna á heimsvísu. Fjölgunin á notendum í farsímum er mjög hröð, en um 500 milljónir manna um allan heim nota nú Facebook í símanum. Það er ekki síst þar sem tækifærin eru sögð liggja, þar sem möguleikar á tengingunum við svo til óplægðan auglýsingamarkað, verslun og ýmsa þjónustu, sem hefur verið að færast hratt yfir í snjallsíma, eru miklir. Þetta gæti styrkt tekjumyndun Facebook til framtíðar litið. Þá hafa einnig komið fram hugmyndir hjá forsvarsmenn Facebook um að styrkja enn frekar samfélagsmiðilinn með útgáfu á eigin gjaldmiðli sem notendur geti keypt fyrir raunverulega peninga. Með Facebook-gjaldmiðlinum verði síðan mögulegt að kaupa ýmsar vörur sem boðið verður upp í verslun á vegum Facebook. Ekkert af þessu er þó komið fram enn.Tólffalt lægri tekjur en hjá Google Heildartekjur Facebook í fyrra námu um 3,2 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega 380 milljörðum króna, og nam rekstrarhagnaður um einum milljarði dala, um 120 milljörðum króna. Verðmiðinn á Facebook, þegar það var skráð á markað, nam því ríflega hundraðföldum hagnaði ársins í fyrra. Reksturinn, sem byggir fyrst og fremst á auglýsingatekjum, er þó ekki svo slæmur, miðað við heildarveltu. En miklar væntingar hafa verið byggðar upp, sem erfitt er að segja til um hvort séu byggðar á raunhæfum markmiðum um vöxt. Facebook hefur verið frekar umdeildur auglýsingavettvangur í Bandaríkjunum. Markaðsdeild General Motors, stærsta auglýsanda Bandaríkjanna, gafst upp á að auglýsa á Facebook og sagði auglýsingar þar ekki virka nægilega vel. Þetta varð kveikjan að umræðu um auglýsingar á Facebook og hvort þær virkuðu nægilega vel yfir höfuð, en helsti keppinautur Facebook er Google, sem er langasamlega stærsti auglýsingavettvangur á vefnum í heiminum, og fer ört stækkandi. Heildartekjur Google á ári námu tæplega 40 milljörðum dala, eða sem nemur ríflega tólfföldum árstekjum Facebook. Með lengri reynslu og frekar upplýsingum mun koma betur í ljós hvernig Facebook virkar sem auglýsingavettvangur, og þá hvernig neytendur nýta sér miðilinn.Geimverur Þrátt fyrir ýmsar hindranir, og um margt misheppnaða skráningu á markað, telja forsvarsmenn Facebook að framtíð miðilsins sé björt og tækifærin slík, að erfitt sé að klúðra þeim. Sam Hamadeh, sérfræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu PrivCo, segir að fjárfestar á Wall Street séu ekkert alltof spenntir fyrir stjórnendateymi Facebook. „Wall Street lítur á 28 ára hakkara, sem eru forstjórar, [Mark Zuckerberg forstjóri Facebook er 28 ára innsk. blm]., sem geimverur. Stundum getur þessi einstaklingur hjálpað þér. En þegar á móti blæs, þá verða fjárfestar mjög varir um sig og vantreysta þeim."
Mest lesið Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Viðskipti innlent Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira