Bandaríska póstþjónustan stefnir í gjaldþrot 20. júlí 2012 06:41
Sögulegt gjaldþrot er framundan í Bandaríkjunum og jafnframt það fyrsta í langri sögu bandarísku póstþjónustunnar. Þann fyrsta ágúst n.k. á bandaríska póstþjónustan að standa skil á greiðslu á 5,5 milljörðum dollara vegna framtíðarskuldbindinga gagnvart lífeyrissjóðum starfsmann sinna. Þetta fé á póstþjónustan ekki til sökum mikils taprekstrar á undanförnum árum. Þetta greiðslufall mun þó ekki hafa áhrif á starfi þjónustunnar í fyrstu. Bandaríska póstþjónustan er sjálfstæð opinber stofnun og undir venjulegum kringumstæðum myndi bandaríska þingið hlaupa undir bagga með henni. Hinsvegar er bandaríska þingið að fara í sitt árlega sumarfrí í ágúst og engar líkur eru á að vandamál póstþjónustunnar verði leyst þar fyrir mánaðarmótin. Bandaríska póstþjónustan getur rakið sögu sína aftur til ársins 1775 þegar Benjamin Franklin var útnefndur sem fyrsti póstmeistari Bandaríkjanna. Þetta verður í fyrsta sinn í allri þeirri sögu að póstþjónustan getur ekki greitt reikninga sína.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira