Kreppan lækkar fæðingartíðini í 25 af 30 Vesturlöndum 5. júlí 2012 07:19
Efnahagskreppan í heiminum hefur haft þau áhrif að fæðingartíðni hefur lækkað í 25 af 30 vestrænum löndum þar á meðal Íslandi. Á Íslandi hefur tíðnin þó lækkað hvað minnst og nær staðið í stað á síðustu tveimur árum. Raunar jókst hún nokkuð á fyrsta árinu eftir hrunið, þ.e. árið 2009 en þá fæddust rúmlega 5.000 börn á Íslandi sem er mesti fjöldi fæðinga á einu ári í sögu landsins. Í sumum löndum eins og Lettlandi hefur fæðingartíðnin hinsvegar hrunið, en þar fór hún úr 1,44 börnum á konu árið 2008 og niður í 1,14 börn á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Institute of Demography í Vín. Þau lönd sem orðið hafa hvað harðast úti þegar kemur að lækkun fæðingartíðni eru Spánn, Grikkland, Eistland. Danmörk og Ungverjaland auk Lettlands. Fram kemur að sama þróun átti sér stað í heimskreppunni miklu í kringum árið 1930. Ástæðan fyrir því að fæðingum fækkar í vestrænum ríkjum er efnahagsástandið og þá einkum óöryggið sem fylgir auknu atvinnuleysi. Þetta hefur þau áhrif að fólk giftir sig seinna og bíður með að eignast börn.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira