Forseti Kýpur í pókerspili þar sem mikið er lagt undir 6. júlí 2012 06:58
Forseti Kýpur hefur att Evrópusambandinu og Rússlandi gengt hvort öðru í pókerspili þar sem mikið er lagt undir. Forsetinn sem hér um ræðir, Demetris Christofias, er eini kommúnistinn sem er þjóðarleiðtogi í Evrópu. Jafnframt er hann menntaður í Sovétríkjunum sálugu. Á sama tíma og hann hefur leitað eftir neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er hann einnig á höttunum eftir stóru láni frá Rússum. Þetta staðfesti Demetris á fundi með blaðamönnum í Nicosiu höfuðborg Kýpur í gærdag en fulltrúar frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru í Nicosiu til að leggja mat á fjárþörf Kýpur. Talið er að þörfin nemi um 10 milljörðum evra eða sem svarar til 60% af landsframleiðslu landsins. Demetris telur að láni frá Rússum fylgi ekki jafnströng skilyrði og reikna má með að Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni krefjast. Rússar hafa raunar þegar lánað Kýpur 2,5 milljarð evra á afar góðum kjörum og því láni fylgdu engin skilyrði. Demetris segir að Rússar séu nánir vinir Kýpverja og hafi áhuga á að koma þjóð sinni til aðstoðar.
Mest lesið „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Viðskipti erlent Northvolt í þrot Viðskipti erlent Lífeyrissjóður verzlunarmanna seldi sig út úr Sýn Viðskipti innlent Íslenskar auglýsingastofur tróna á toppnum yfir stressaða starfsmenn Viðskipti innlent Skel keypti tíu prósenta hlut í Sýn Viðskipti innlent Sigurjón og Birna María til Nóa Siríus Viðskipti innlent Þrettán milljarða tap en reksturinn fjármagnaður til 2028 Viðskipti innlent „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ Atvinnulíf Sandra nýr fjármálastjóri Coca-Cola á Íslandi Viðskipti innlent Spá því að stýrivextir verði lækkaðir um 25 punkta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Setur háa tolla á Evrópu Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Sjá meira