Veiðisýning fjölskyldunnar í Veiðiflugum 31. maí 2012 14:31 Klaus Frimor mun sýna hin ýmsu afbrigði af fluguveiðiköstum á laugardag. Veiðiflugur
Veiðimessa Veiðiflugna, veiðisýning fjölskyldunnar, verður haldin í annað sinn um helgina. Meðal þess sem boðið verður upp á í ár er kastsýning Klaus Frimor á túninu fyrir neðan Langholtsskóla. Klaus mun sýna ýmis afbrigði af köstum, allt frá grunn köstum og til þess hvernig hægt er að kasta fyrir horn, að því er segir í tilkynningu frá Veiðiflugum. Bubbi Morthens tekur nokkur lög auk þess sem Ási og Gunni Helagsynir kynna myndina Leitin af stórlaxinum. Veiðiflugur eru að Langholtsvegi 111 og opnar húsið klukkan 10.Dagskráin: kl. 11.00 Veiðileyfa kynning frá SVFR, Strengjum, og Hreggnasa. Kynning á reyktum og gröfnum laxi frá Reykhúsinu Reykhólum. Ási og Gunni Helgasynir kynna og selja Leitina af Stórlaxinum. kl. 12.00 Pylsur og súkkulaði, svali og gosdrykkir fyrir alla. kl. 13.00 til 18.00 Steingrímur Einarsson kynnir hjólin frá EINARSSON. kl. 14.00 Veiðiklóin Bubbi Morthens tekur nokkur lög fyrir gesti Veiðimessunnar. kl. 15.00 Klaus Frimor verður með kastsýningu á túninu fyrir neðan Langholtsskóla við Holtaveg. Þar sýnir hann allar útfærslur af köstum og nokkur kast trikk sem engin má missa af. Þá verður kynning á Guideline veiðivörunum og Exceed-stöngum.
Stangveiði Mest lesið Svona á að hamfletta rjúpurnar Veiði Nýr 10 ára samningur um Laxá í Dölum Veiði Ein mest krefjandi en skemmtilegsta veiði sem þú finnur Veiði Eystri Rangá að verða uppseld í júlí Veiði Rjúpan kostar allt að 5000 krónur stykkið Veiði Fínar bleikjur að veiðast við Kaldárhöfða Veiði Loksins spáð rigningu sem gæti lífgað uppá veiðina Veiði Silungasvæðið í Miðfjarðará komið á Veiða.is Veiði Hvað á rjúpa að hanga lengi? Veiði Veiðitúr til Grænlands í verðlaun Veiði