Markaleysi og tvö töp í röð hjá Íslandsmeisturunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. mars 2012 11:00 Stjörnustúlkur fögnuðu Íslandsmeistaratitli sínum vel síðastliðið sumar. Mynd / Stefán
Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu 2-0 gegn Eyjakonum í viðureign liðanna í Lengjubikarnum en leikið var í Kórnum í gærkvöldi. Hin tvítuga Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði bæði mörk ÍBV. Kristín er dóttir landsliðsmannsins, atvinnumannsins og síðar þjálfarans Sigurlásar Þorleifssonar. Úrslitin eru nokkuð áhugaverð í ljósi þess að liðin mættust í upphafi árs í Faxaflóamótinu. Þá unnu Stjörnustúlkur stórsigur 5-0. Raunar unnu þær alla fjóra leiki sína í því móti með samanlagða markatölu 20-1. Stjarnan er stigalaus að loknum tveimur fyrstu leikjum sínum í Lengjubikarnum. Liðið tapaði gegn Val í fyrsta leik sínum, einnig 2-0. Garðbæingar eiga því enn eftir að skora í keppninni. Það er þó jákvætt fyrir Stjörnuna að markadrottningin Ashley Bares er mætt til leiks á nýjan leik. Bares, sem skoraði 21 mark og var markahæst í efstu deild í fyrra, hefur dvalið vestanhafs í vetur. Hún var í liði Stjörnunnar í gær en tókst líkt og félagar hennar ekki að skora.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ Sjá meira