Þjálfarar Ajax með námskeið á Íslandi 8. mars 2012 16:30 Kolbeinn Sigþórsson leikur með Ajax.
Dagana 9. og 10. mars mun Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir námskeiði fyrir knattspyrnuþjálfara. Hingað til lands koma þeir Arnold Muhren og Eddie van Schaick, þjálfarar í unglingaakademíunni hjá hollenska stórliðinu Ajax og munu stýra námskeiðinu. Arnold Muhren og Eddie van Schaick hafa báðir starfað við akademíuna hjá Ajax til nokkurra ára. Auk þessa á Arnold Muhren að baki langan og farsælan feril sem leikmaður með Ajax, Volendam, Twente, Ipswich Town og Manchester United á árunum 1970-1989. Hann lék einnig 23 landsleiki með Hollendingum. Hann er einn af níu leikmönnum í sögu knattspyrnunnar sem hafa unnið þrjá stærstu titlana í evrópskri knattspyrnu, þ.e. Evrópukeppni meistaraliða árið 1973 með Ajax, Evrópukeppni félagsliða árið 1981 með Ipswich Town og Evrópukeppni bikarhafa árið 1987 með Ajax. Hann varð sömuleiðis Evrópumeistari með Hollendingum árið 1988. Akademían hjá Ajax er annáluð fyrir að ala upp góða knattspyrnumenn. Dæmi um leikmenn sem komið hafa úr akademíu félagsins eru Johan Cruijff, Johan Neeskens, Marco van Basten, Frank Rijkaard, Frank de Boer, Ronald de Boer, Edwin van der Sar, Dennis Bergkamp, Edgar Davids, Clarence Seedorf, Patrick Kluivert, Ryan Babel, Rafael van der Vaart, Wesley Sneijder, Nigel de Jong, John Heitinga, Thomas Vermalen, Christian Eriksen og Gregory van der Wiel. Námskeiðið telur sem endurmenntun á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum. Námskeiðið er opið öllum. Námskeiðsgjaldið er 2.500 kr. fyrir félagsmenn í Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands og 5.000 kr. fyrir aðra. Skráning er hafin en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is með eftirfarandi upplýsingum: nafn, kennitala, tölvupóstfang og símanúmer. Dagskrá námskeiðsins má sjá hér fyrir neðan. Dagskrá: Föstudagur 9. mars 17:45 – 19:00 Evening presentation Ajax Academy - Fífan 19:00 – 20:00 U18 Attacking and finishing (Practical session) - FífanLaugardagur 10. mars 09:00 – 10:00 U12 Technique (Practical session) - Fífan 10:00 – 11:00 U15 Positional play(Practical session) - FífanHádegishlé 12:30 – 13:30 Presentation Ajax Scouting - KSÍ 3. hæð 13:30 – 14:30 Presentation Arnold Muhren "The Career" - KSÍ 3. hæð 14:30 – 15:30 Concept of play from E - A youth - KSÍ 3. hæð
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Snorri semur til 2032 Handbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Handbolti „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Ólympíukóngurinn fjárfestir í skák eins og Haaland Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ancelotti gefur Neymar vonarglætu „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Fótboltamaður lést eftir skotárás á liðsrútu Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð Svona var blaðamannafundur KSÍ Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Sjá meira