Turbine Potsdam tapaði óvænt stigum í fyrsta leik Margrétar Láru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2012 15:59 Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Stefán
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í 1. FFC Turbine Potsdam töpuðu óvænt stigum í dag þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir vetrarfrí. Hamburger SV var í næstneðsta sæti deildarinnar en hoppaði upp úr fallsæti með því að ná í þetta dýrmæta stig. Turbine Potsdam er enn á toppnum en liðið var búið að ná í 30 af 33 mögulegum stigum fyrir leikinn í dag. Margrét Lára, sem var að spila sinn fyrsta alvöru leik með Turbine Potsdam kom inn á sem varamaður á 60. mínútu og fékk sitt fyrsta færi aðeins tveimur mínútum síðar. Hún fékk síðan algjört dauðafæri sjö mínútum fyrir leikslok en skot hennar fór rétt framhjá. Aylin Yaren kom Hamburger SV í 1-0 á 48. mínútu en Patricia Hanebeck jafnaði leikinn á 72. mínútu en tólf mínútum fyrr hafði Margrét Lára komið inn á fyrir Svíann Antonia Göransson. Það er stutt á milli leikja hjá Turbine Potsdam því liði mætir Bayer Leverkusen á heimavelli á sunnudaginn.
Þýski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira