Afskrifa 662 milljónir evra af skuldum Grikklands 16. febrúar 2012 11:20 Societe Generale.
Franski bankinn Societe Generale (SG) þarf að afskrifa sem nemur 662 milljónum evra, um 107 milljarða króna, vegna efnahagsvanda Grikklands. Afskriftin þykir hærri en reiknað var með áður en uppgjör bankans fyrir síðasta fjórðung ársins í fyrra var gert opinbert í morgun, að því er fram kemur á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. SG hagnaðist um 100 milljónir evra á síðasta fjórðungi síðasta árs. Hagnaðurinn dróst saman um næstum 90 prósent milli ára, að mestu vegna afskrifta skulda Grikklands. Þess er enn beðið að Grikkland fái 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en áætlun um endurskipulagningu ríkisfjármála landsins hefur þegar verið samþykkt af gríska þinginu. Henni hefur hins vegar ekki verið hrint í framkvæmd enn. Búist er við því að um helmingur skulda Grikklands verði afskrifaður samhliða endurskipulagningu ríkisfjármálanna.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira