Las í 20 borgum á 21 degi 27. október 2011 23:00 Hálfgert tónleikaferðalag Hallgrímur Helgason fékk góð ráð hjá GusGus-liðum á leiðinni til Þýskalands. Þeir ráðlögðu honum að drekka mikið vatn, það væri lykillinn að því að halda út svona langt ferðalag.Fréttablaðið/Valli
Hallgrímur Helgason er kominn heim eftir að hafa þvælst um allt Þýskaland með nýjasta skáldverk sitt, Konan við 1000°. Bókin kom fyrst út þar vegna bókamessunnar í Frankfurt og hefur fengið afbragðs dóma en hún er innblásin af sögu barnabarns Sveins Björnssonar, fyrrum forseta Íslands. „Þetta voru 20 borgir á 21 degi,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur, nýkominn heim til Íslands. Varla hefur það farið framhjá neinum að Ísland var heiðursgesturinn á bókamessunni í Frankfurt og Hallgrímur nýtti það dauðafæri vel; nýjasta skáldverk hans, Konan við 1000°, kom fyrst út í þýskri þýðingu og rithöfundurinn lagði á sig mikið ferðalag um Þýskaland til að lesa upp úr henni. „Ég las á hverju kvöldi og fór svo til nýrrar borgar. Ég hitti einmitt GusGus-liða á leiðinni út og fékk leiðbeiningar hjá þeim hvernig væri hægt að lifa svona túr af, sem minnir auðvitað meira á tónleikaferðalag en upplestrarferð. Lykillinn að því er að drekka nóg af vatni þótt annar vökvi hafi auðvitað líka komið við sögu,“ segir Hallgrímur, sem var jafnframt boðið út að borða á hverju kvöldi og viðurkennir skáldið að það þori varla að stíga á vogina eftir heimkomuna. Margir eiga eflaust eftir að hnjóta um ættarnafnið Björnsson sem aðalpersóna bókarinnar, Herbjörg María Björnsson, ber, en afkomendur Sveins Björnssonar, fyrrum forseta íslenska lýðveldisins, hafa borið það. Hallgrímur staðfestir að saga eins af barnabörnum Sveins, Brynhildar Georgíu Björnsson-Borger, hafi orðið honum innblástur að bókinni. „Það er eiginlega mjög skondin saga á bak við þetta. Ég var að hjálpa konunni minni fyrrverandi í kosningabaráttu fyrir Samfylkinguna og var látinn hafa lista af símanúmerum til að hringja í. Númer fimm á þeim lista var kona sem bjó í bílskúr og ætlaði sko alls ekki að kjósa þessa kommúnista. En við áttum ágætt spjall og hún útskýrði fyrir mér lífið sitt í bílskúrnum og muninn á leitarvélunum Yahoo og Google, og mér fannst hún alveg þrælmerkileg og geta orðið upphaf að næstu sögu. Ég ákvað að þegar ég væri búinn að koma Tíu ráðum burt frá mér myndi ég heimsækja hana en komst þá að því að hún hafði dáið. Ég komst hins vegar líka að því að hún hefði gefið út ævisögu, að pabbi hennar hefði verið með nasistum og að afi hennar væri Sveinn Björnsson forseti,“ segir Hallgrímur, sem tekur hins vegar skýrt fram að hann hafi breytt miklu, bæði nafni aðalpersónunnar og öðrum staðreyndum. „Þetta er skáldsaga, fyrst og fremst, og ég bið fólk að lesa hana sem slíka.“ Seinni heimsstyrjöldin hefur alla tíð verið hálfgert tabú í Þýskalandi en umræðan um þetta tímabil virðist vera að opnast þótt málefnið sé vissulega enn eldfimt. Hallgrímur segist hafa verið spenntur að heyra hvernig Þjóðverjar tækju bókinni, hann gangi mjög langt í gríninu á kostnað nasistanna. „Aðaláhættan var auðvitað sú að maður væri að gera eitthvað sem hefði verið gert áður. Og svo að maður færi yfir strikið en ég var með góðan yfirlesara og ég held að mestallt hafi fengið að halda sér í bókinni.“ Hins vegar hafi ríkt sérstaklega mikil eftirvænting hjá honum að heyra hvernig þeir tækju kaflanum um hálfbróður Hitlers, sem er fótalaus gyðingur, en sá kafli gengur víst mjög langt í háðinu á Þriðja ríkið. „Honum var vel tekið, ég var alveg sérstaklega ánægður með það.“ freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Sjá meira