Sökuð um að stela sex milljónum 12. október 2011 03:30 Í eigin vasa Konan tók fjármunina til eigin nota.
Kona á fertugsaldri hefur verið ákærð fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfelldan fjárdrátt. Konunni er gefið að sök að hafa sem bókari og gjaldkeri, hjá fasteignasölunni Hraunhamri í Hafnarfirði, dregið sér á árunum 2007 og 2008 fjármuni og önnur verðmæti frá félaginu, alls rúmlega sex milljónir króna. Konan tók út vörur, samtals að verðmæti 905.239 krónur, í 24 skipti í heimildarleysi, leysti út í nafni Hraunhamars og nýtti í eigin þágu. Meðal annars keypti hún sjónvarp, tölvu og myndavél. Þá er konunni gefið að sök að hafa greitt seljanda fasteignar, sem konan hafði sjálf fest kaup á, fyrir milligöngu Hraunhamars, þrjár milljónir króna af bankareikningi fasteignasölunnar, sem greiðslu vegna afhendingar fasteignarinnar. Konan hafði áður aðeins lagt tvær milljónir inn á reikning Hraunhamars. Þá dró konan sér tæplega 4,5 milljónir með því að gefa út tékka af bankareikningum Hraunhamars. Þá dró hún sér ríflega 200 þúsund frá starfsmannafélagi Hraunhamars.- jss
Fréttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira