Lífið

Fjölgun í fjölskyldunni

Ólétt Jessica Simpson er sögð ganga með sitt fyrsta barn undir belti.
nordicphotos/getty
Ólétt Jessica Simpson er sögð ganga með sitt fyrsta barn undir belti. nordicphotos/getty
Bandaríska söngkonan Jessica Simpson er sögð ganga með sitt fyrsta barn undir belti. Simpson hyggst giftast kærasta sínum, íþróttakappanum Eric Johnson, í nóvember.

Nýverið hélt parið upp á afmæli Johnsons ásamt vinum en athygli vakti þegar Simpson neitaði að skála fyrir unnusta sínum í kampavíni og telja nú slúðurmiðlar að söngkonan sé ólétt.

„Hún er þegar komin með skrítnar langanir í mat. Hún borðar súkkulaði, nachos, ostapopp og óáfengar margarítur. Þau líta á þetta sem frábæra brúðkaupsgjöf og eru mjög spennt,“ var haft eftir innanbúðarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.