Áætlun Íslands til fyrirmyndar 20. apríl 2011 06:30 á fundarstað Ys og þys í nýrri skrifstofubyggingu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington. Fréttablaðið/ÓKÁ
Fleiri komu á vegum íslenskra stjórnvalda á vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþjóðabankans í Washington D.C. um nýliðna helgi en alla jafna koma frá stjórnvöldum annarra landa. Yfirleitt koma ekki nema fjármálaráðherrar eða seðlabankastjórar með fylgiliði sínu til að sitja fundi. Frá Íslandi komu hins vegar bæði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra ásamt fylgdarliði. Þá kom einnig til fundanna Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Jón Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra Seðlabankans. Reyndar er það svo að lönd sem eru með efnahagsáætlun í samstarfi við AGS senda yfirleitt fleiri til funda á stórfundum sjóðsins en önnur lönd, enda er umfang samstarfsins heldur meira en hjá hinum. Þá hefur orðið sú skipulagsbreyting í samstarfi Íslands og AGS að forræði samskiptanna hefur færst frá fjármálaráðuneytinu og yfir í efnahags- og viðskiptaráðuneytið.World Bank President Robert Zoellick speaks during a news conference at the 2011 Spring Meetings of the World Bank Group/IMF, Thursday, April 14, 2011, in Washington. (AP Photo/Jacquelyn Martin) vorfundur AGS AlþjóðabankinnÞá herma heimildir blaðsins að innan AGS þyki traustvekjandi að þjóðir sem eru með efnahagsáætlun í gangi í samstarfi við sjóðinn sendi fleiri til fundar en annars. Þykir það til marks um að þjóðirnar taki verkefni sitt alvarlega og vilji standa við þær áætlanir sem fram hafa verið settar um umbætur. Enda er það svo að áætlun Íslands hjá AGS þykir afar vel heppnuð og jafnvel þannig að hún endurspegli breytt viðmót og aðferðafræði hjá sjóðnum. Á árum áður þykir sjóðurinn hafa gert mistök í stífni við að krefjast niðurskurðar hjá þjóðum í kröggum og eins með því að vilja alls ekki beita verkfærum á borð við gjaldeyrishöft. Þannig hafi ríki mátt þurfa að þola veikari gjaldmiðil en ella og niðurskurð af þeirri stærðargráðu að hamlaði vexti. Dæmi Íslands er allt annað og kom fram í samtali blaðsins við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra þegar hann var staddur á vorfundi sjóðsins að AGS væri áhugasamt um að efnahagsáætlunin héldi áfram að ganga vel. „Þeir líta á farsæl lok áætlunarinnar sem ákveðna skrautfjöður í hattinn hjá sér," sagði hann. Núna fer Norðmaður fyrir kjördæmi Íslands hjá AGS, en þjóðirnar skiptast á um að veita því forystu. Þannig var Geir H. Haarde í forsvari fyrir kjördæmið árin 2001 til 2003. Á fyrsta fundi í kjördæminu á föstudag var Steingrímur beðinn að fara yfir þróun mála hjá Íslandi og segir að þeirri samantekt hafi verið afar vel tekið. Framgangur efnahagsáætlunar Íslands hjá AGS virðist tryggur.John Lipsky og Financial Stability Report fundur AGS Washington DC Bandaríkin apr 2011 Julie KozackÁ vorfundi AGS var töluvert rætt um þær breytingar sem orðið hafa á vinnubrögðum þar og vangaveltur um breytt hlutverk hans í heiminum eftir lausafjárkreppuna 2008. Enda var það svo að á fundi fulltrúa 20 helstu hagkerfa heimsins (G20) var ákveðið um helgina að sjóðurinn hefði sérstakt eftirlit með skuldastöðu og efnahagshorfum í mikilvægustu hagkerfum heimsins. Þar eru undir lönd á borð við Bretland, Þýskaland, Bandaríkin, Japan, Kína og evrusvæðið í heild. Þá er Ísland dæmi um viðsnúning hjá sjóðnum þegar kemur að beitingu gjaldeyrishafta, en þau eru nú viðurkennt verkfæri í efnahagsstjórnun ríkja, í það minnsta tímabundið. Sjóðurinn stendur hins vegar í mörgum erfiðum verkefnum og virðist sem erfiðleikar séu að aukast fremur en hitt í mörgum löndum, svo sem á Írlandi, í Grikklandi, Portúgal og á Spáni. Hjá sjóðnum eru því nokkrar væntingar um að hampa megi að minnsta kosti einni farsælli áætlun þar sem hlutir hafi gengið upp, en það er áætlun Íslands. Herma heimildir blaðsins því að jafnvel þótt Hollendingar eða Bretar hefðu hug á því að reyna að leggja stein í götu efnahagsáætlunar Íslands vegna framgöngu landsins í Icesave-deilunni (sem reyndar hefur ekki heyrst af) þá yrði lítil stemning fyrir því innan AGS og hjá starfsmönnum sjóðsins.
Fréttir Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira