Ég var alltaf að drífa mig svolítið 31. mars 2011 21:30 Treysti á samstarfsfólkið Ólafur segist hafa lært það að treysta á samstarfsfólk sitt og jafnvel ókunnugt fólk en kvikmynd hans, Kurteist fólk, verður frumsýnd í kvöld. Leikstjórinn segir það hafa verið heimilislegt að taka upp í heimabæ sínum, Búðardal. Hér er hann með framleiðandanum Kristínu Andreu Þórðardóttur.Fréttablaðið/Stefán
Ólafur Jóhannesson er sennilega einn afkastamesti kvikmyndagerðarmaður landsins þótt honum sé eflaust lítið um þann titil gefið sjálfum. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við leikstjórann um nýja sýn á kvikmyndagerðina og leiðina heim til Búðardals. „Mér líður bara nokkuð vel. Það eru allir með eitthvað í sínu lífi sem bíður dóms annarra. Og þá myndast ákveðið spennuástand og áttavitinn ruglast eilítið,“ segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndaleikstjóri en mynd hans, Kurteist, fólk verður frumsýnd í kvöld. Kurteist fólk segir frá Lárusi, verkfræðingi með allt niðrum sig í vinnunni og einkalífinu, sem lýgur sig inn í lítið samfélag úti á landi og lýsir því yfir að hann ætli að bjarga sláturhúsi staðarins. Og allt hefur þetta auðvitað sínar kostulegu afleiðingar. Valinn maður er í hverju hlutverki en aðalhlutverkin eru í höndum Stefáns Karls Stefánssonar, Eggerts Þorleifssonar og Ágústu Evu Erlendsdóttur. „Mig langaði til að gera fjöl-persónu kvikmynd úti í sveit um pólitíska spillingu. Spillingarmálin á Íslandi eru nefnilega svo fyndin, menn athafna sig fyrir opnum dyrum en af því að Íslendingar eru svo uppteknir við vinnu þá nenna þeir ekki að mótmæla spillingunni,“ segir Ólafur en myndin er mestöll tekin upp í heimabæ leikstjórans, Búðardal. „Það var mjög notalegt að koma aftur heim, þetta var eiginlega svona svipað eins og að fara í gott nudd. Við fengum mikla samvinnu frá heimamönnum, fengum að nota húsin þeirra í tökur og fólk fékk sér bara kaffi á meðan í næsta húsi. Þetta var því allt mjög heimilislegt.“ Ólafur er sennilega einn afkastamesti leikstjóri landsins og hefur verið nánast stanslaust að frá því að Blindsker, saga Bubba Morthens, var frumsýnd 2004. Fáum kemur það því á óvart að hann skuli klára tvær myndir þetta árið, Kurteist fólk er önnur þeirra og hin er Borgríki, hasarmynd um undirheima Reykjavíkur. „Myndirnar eru unnar á mjög ólíku tímabili og ég hef því skipt mínum tíma jafnt á milli þeirra og þannig getað komið alltaf ferskur inn, náð smá fjarlægð á þær.“ Ólafur viðurkennir að hann hafi breytt sínu verklagi, til að mynda séu tvö ár liðin frá því að formlegum tökum á Kurteisu fólki lauk. „Maður vill bara vanda sig við að framreiða þennan rétt. Maður hefur hvorki getu né hæfileika til að rumpa þessu út úr sér á örskotsstundu. Ég var alltaf að drífa mig svolítið. Helsti munurinn er hins vegar sá að ég hef lært að nota fólkið í kringum mig, ókunnugt fólk og samstarfsfólk.“ Ólafur ætlar að taka sér smá pásu núna, njóta þess að finna sumarið koma og finna ferskt loft. „Ég er líka kominn á þann stað að mig langar til að vinna með annarra manna verk, komast bara í vinnu einhvers staðar. Það er komin ný plata á fóninn og nú er bara að sjá hversu lengi hún endist, kannski verður hún bara smáskífa.“ freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira