Útflutningur jókst um 20 prósent 5. janúar 2011 05:00 Fiskiþorpið Henningsvær á Lófóten í Noregi hefur notið góðs af metári í norskum sjávarútvegi. Mynd/AFP-NordicPhotos
Verðmæti útfluttra sjávarafurða frá Noregi jókst sjöunda árið í röð í fyrra og nam þá um 1.100 milljörðum íslenskra króna sem er um 20 prósenta aukning frá 2009. Frakklands- og Rússlandsmarkaðir eru stærstu útflutningsmarkaðir norsks sjávarútvegs. „Samkeppnin á heimsmarkaði er hörð. Við verðum að nýta þau tækifæri sem liggja í því að auka verðmæti sjávarafurða okkar, þar eru miklir möguleikar,“ segir Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í samtali við norska Ríkisútvarpið. Alls voru flutt út 2,7 milljónir tonna af fiski, 93.000 tonnum meira en árið áður. „Þetta jafngildir því að 37 milljónir máltíða með norskum fiski séu snæddar einhvers staðar í heiminum á hverjum degi,“ segir Terje E. Martinussen, forstjóri Útflutningsráðs sjávarafurða í Noregi. Mest jókst útflutningur á eldisfiski og hefur aldrei verið framleitt meira af honum í Noregi en á síðasta ári. Verð á eldislaxi er nú í hámarki á heimsmarkaði, hærra en verið hefur í 21 ár. - pg
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira