Umfjöllun: Tryggvi klúðraði 2 vítum og Grindavík bjargaði sér í Eyjum Valur Smári Heimisson á Hásteinsvelli skrifar 1. október 2011 13:00 Óskar Pétursson ver hér fyrra vítið frá Tryggva Guðmundssyni. Mynd/Óskar Pétur Friðriksson
Grindvíkingar gerðu hið ótrúlega og björguðu sér frá falli með því að vinna 2-0 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag. Bæði mörk Grindavíkur komu á síðustu tíu mínútunum en áður hafi Óskar Pétursson, markvörður liðsins haldið Grindavíkurliðinu á floti með frábærri markvörslu. Tryggvi Guðmundsson klúðraði tveimur vítum í leiknum. Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindavíkur, kom sínum mönnum 1-0 á 80. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og fjórum mínútum síðar slapp Magnús Björgvinsson í gegn og skoraði annað markið eftir stungusendingu frá Scott Ramsay. Tryggva Guðmundssyni tókst ekki að bæta markamet Inga Björn Albertssonar þrátt fyrir að hafa fengið mörg tækifæri til þess. Bestu færin voru þó vítaspyrnurnar tvær sem hann klúðraði í leiknum, Óskar Pétursson varði fyrra vítið frá honum á 17. mínútu leiksins en Tryggvi skaut síðan yfir úr seinna vítinu á 90. mínútunni. Veðrið var ekki upp á sitt besta eins og kannski við var að búast þegar menn spila utanhús í októbermánuði. Vegna aðstæðna var ekki spilaður neinn glans fótbolti en völlurinn var mjög blautur og mikill vindur sem stór beint á annað markið. Eyjamenn spiluðu undan vindi í fyrri hálfleik og fór boltinn lítið af vallarhelmingi Grindvíkinga. Lítið var um hættuleg færi framan af en á 17. mínútu fengu Grindvíkingar dæmda á sig ansi vafasama vítaspyrnu þegar Jamie McCunnie braut á Tryggva Guðmundssyni. Spyrnan var svo sem ágæt hjá Tryggva en maður leiksins, Óskar Pétursson, varði glæsilega. Grindvíkingar héldu hreinu í fyrri hálfleik og spiluðu, eins og við var að búast, með vindinn í bakið í þeim síðari. Þá voru Grindvíkingar heldur betri aðilinn en uppskáru hornspyrnu á 80. mínútu. Scott Ramsey tók spyrnuna og þjálfarinn, Ólafur Örn, stangaði boltann í netið. Aðeins fjórum mínútum síðar komust Grindvíkingar í 0–2 þegar Scott Ramsey átti sendingu innfyrir vörn Eyjamanna beint á Magnús Björgvinsson sem gerði engin mistök þegar hann var einn á móti Abel og lagði boltan utanfótar í hægra hornið. Eyjamenn voru ekki alveg hætti en þeir fengu vítaspyrnu á lokamínútu leiksins og Tryggvi Guðmundsson fór á punktinn en skaut boltanum vel yfir markið. Ótrúlegur leikur á Hásteinsvellinum en Grindvíkingar björguðu sér frá falli og Eyjamenn rétt hengu í Evrópusætinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Enski boltinn „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Handbolti „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Besta sætið: Hættið þessu rugli og fagnið mörkunum ykkar Sport Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Enski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Sjá meira