Kjartan Henry: Hinn rauðhærði Nesta kom til bjargar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2011 19:51
Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, lét ekki meiðsli í öxl og veikindi stöðva sig og spilaði í 90 mínútur gegn Keflavík í kvöld. Hann lagði upp eitt mark í dramatískum 3-2 sigri sinna manna. Allt útlit var fyrir jafntefli þar til að Aron Bjarki Jósepsson skoraði sigurmark KR með skalla eftir hornspyrnu í uppbótartíma. „Þessi sigur var ógeðslega sætur," sagði Kjartan Henry en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Við höfum fengið á okkur nokkur mörk á lokamínútunum í sumar og hefur það verið mjög fúlt. Það var því sætt að kynnast hinu líka." „Sigurmarkið kom líka úr óvæntri átt. Hinn rauðhærði Nesta kom fljúgandi og skallaði boltann í netið," bætti hann við í léttum dúr. Hann átti þar vitanlega við Aron Bjarka sem skoraði sigurmark KR. Hann segir að það hefði verið erfitt að kyngja þeirri niðurstöðu að fá aðeins eitt stig úr leiknum, hefði leiknum lyktað með jafntefli. „Maður var farinn að horfa á klukkuna og hrista hausinn. En við héldum áfram og uppskárum horn. Bjarni sendi frábæran bolta inn og það vann leikinn fyrir okkur." KR var með talsverða yfirburði í leiknum þar til að Keflavík sótti í sig veðrið á síðustu 20 mínútunum og náðu að jafna metin. „Þetta hefur ekki verið að falla með okkur í síðustu leikjum og var kominn tími á sigur. Maður hugsar alltaf um það sem maður hefði getað gert betur en það þýðir ekkert að dvelja við það. Maður verður bara að vera fullorðinn." „Nú erum við einir á toppnum og það er ótrúlega skemmtilegt," sagði Kjartan Henry. Hann segir það góð tilfinning að hafa loksins klárað þennan frestaða leik gegn Keflavík og vera búnir að spila jafn marga leiki og önnur lið í deildinni. „Maður trúir því varla að það séu bara tveir leikir eftir. Við æfum í átta mánuði á árinu fyrir þetta mót og nú eru tveir leikir eftir. Við hljótum að geta gefið allt sem við eigum í þá."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Íslenski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann Golf „Svona Van der Sar í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni 2008“ Sport Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Fleiri fréttir Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Sjá meira