Andri missir af leiknum gegn KR - tímabilið í hættu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. september 2011 12:55 Andri Ólafsson í leiknum gegn Stjörnunni í gær. Mynd/Vilhelm
Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, verður ekki með sínum mönnum gegn KR um helgina en hann meiddist í nára í leik liðsins gegn Stjörnunni í Garðabænum í gær. ÍBV og KR eru jöfn að stigum á toppi Pepsi-deildar karla en Eyjamenn þurfa helst á sigri að halda þar sem að KR-ingar eiga leik til góða. En þeir verða að vera án fyrirliða síns í leiknum. Andri segir enn óvíst hversu alvarleg meiðslin eru en svo gæti vel farið að hann spili ekki meira á tímabilinu. „Þetta lítur ekki allt of vel út en það eina sem er pottþétt í augnablikinu er að ég verð ekki með á sunnudaginn,“ sagði Andri í samtali við Vísi í dag. Andri verður að fara til Reykjavíkur til að láta rannsaka meiðslin nákvæmlega en hann ætlar að sjá til hvernig næstu dagar þróast hjá sér. „Ég verð hjá sjúkraþjálfara um helgina og ef þetta skánar ekki verð ég að fara til í myndatöku til að fá úr þessu skorið.“ „Ég ætlaði að spyrna mér í burtu þegar ég fann allt í einu fyrir hörkusmelli í náranum. Annað hvort er þetta alvarleg tognun eða það hefur eitthvað slitnað í vöðvanum. Ef það er raunin verð ég allan veturinn að jafna mig.“ Hann segir að þetta sé svekkjandi, sérstkalega í ljósi þess að lítið er eftir af tímabilinu og ÍBV í bullandi baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. „Allir skemmtilegustu leikirnir eru eftir og þetta er vissulega svekkjandi. En það þýðir ekkert að gráta þetta í langan tíma.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Íslenski boltinn Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn McIlroy varði Masters-titilinn Golf „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl Íslenski boltinn „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn Gaf Brann-liðinu hans Freys falleinkunn: „Átakanlega slakt“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjá meira