Willum: Ekkert sjálfgefið í þessari deild Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. september 2011 22:34 Willum Þór á hliðarlínunni í kvöld. Mynd/Vilhelm
Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, segir að sínir menn muni áfram berjast fyrir tilverurétti sínum í Pepsi-deild karla en liðið tapaði fyrir Fram í miklum botnbaráttuslag í kvöld, 1-0. Fram komst upp í átján stig með sigrinum en Keflavík, Breiðablik og Þór eru öll með 21 stig og Grindavík 20 stig þegar tvær umferðir eru eftir. Keflavík á þó leik til góða - gegn KR á fimmtudaginn. „Það er alveg ljóst að við munum ekkert gefa eftir í þessari baráttu. Það er bara það gamla góða sem gildir - að einbeita sér að einum leik í einu. Framarar eru að berjast fyrir sínu lífi og það erum við líka. Það er ekkert sjálfgefið í þessari deild og við munum halda áfram að vinna vel í okkar málum allt til enda mótsins,“ sagði Willum eftir leikinn í kvöld. Hann segir að það hafi verið lagt upp með að verjast aftarlega gegn Frömurum í kvöld. „Það kannski virtist vera þannig að það hafi legið mikið á okkur í þessum leik því leikáætlun okkar var þannig. Það var augljóst að þeir voru að reyna að teyma okkur fram á völlinn til að geta dælt boltum á bak við vörnina okkar. Þeir eru með hraða framherja og ætluðu að reyna að láta þá skapa usla í vörninni okkar.“ „Þetta er það sem við undirbjuggum okkur fyrir og við gáfum þeim því lítið pláss. Svo gleymdum við okkur í eitt skipti og þeir refsuðu okkur fyrir það. Eftir markið settum við ferska fætur inn á völlinn og þrýstum liðinu framar. Jafntefli var hálfur sigur fyrir okkur og við sáum til lands allan tímann. Leikmennirnir lögðu sig fram, börðust allir sem einn og leikaðferðin var að virka. Þetta var hörkuslagur.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar Íslenski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann Golf „Svona Van der Sar í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni 2008“ Sport Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Fleiri fréttir Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Sjá meira