Viðskipti erlent

Uppsveiflan á mörkuðum heldur áfram

Uppsveiflan heldur áfram á mörkuðum í dag og eru flestar tölur grænar í kauphöllum Evrópu.

FTSE vísitalan í London hefur hækkað um 1,3% í morgun, Dax vísitalan í Frankfurt um 1,8% og Cac 40 vísitalan í París einnig um 1,8%. Þetta kemur í kjölfar hækkanna á Asíumörkuðum í nótt og á Wall Street í gærkvöldi.

Nikkei vísitalan í Tókýó endaði í plús 1,2% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong hækkaði um tæp 2%.

Þá benda utanmarkaðsviðskipti á Wall Street til þess að þar verði vænar grænar tölur til staðar þegar markaðir opna eftir hádegið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×