Á að seinka opnun í gæsaveiðinni? Karl Lúðvíksson skrifar 15. ágúst 2011 15:13 Mynd af www.ust.is
Eftir afskaplega kalt vor hafa menn rætt það í alvöru sín á milli að of snemmt sé að hefja gæsaveiðar þetta árið 20. ágúst eins og venjan er. Ástæðan er sú að víða um land, þá sérstaklega á norður og austurlandi eru ungarnir ennþá litlir, ófleygir og margir ennþá í dún. Veiðivísir var á ferðinni um norður og austurland og okkur var brugðið við að sjá hversu fáa unga við sáum með gæsunum. Í fyrra var það ekkert tiltökumál að telja 3-6 unga með gæs en núna sáust 1-2 ungar og það bara með fáum fuglum. Heilu hóparnir sáust af gæsum sem voru alveg ungalausir. Á vesturlandi og suðurlandi er staðan betri en þó ekki eins og hún ætti að vera í venjulegu ári. Það hefur greinilega haft áhrif á varpið hversu kalt vorið var og víða hefur varpið hreinlega misfarist. Á heiðunum fyrir austann sáust gæsir með unga sem hafa verið að koma úr eggjum í júlí, alveg klárt mál. Opnunin á gæs er 20. ágúst eins og áður segir og sem betur fer fyrir skyttur landsins þá eru Heiðagæsa- og Grágæsastofnarnir í góðum málum svo að eitt ár í lélegu varpi hefur ekki mikið að segja um afkomu eða stofnstærð.
Stangveiði Mest lesið Svona á að hamfletta rjúpurnar Veiði Ein mest krefjandi en skemmtilegsta veiði sem þú finnur Veiði Hvað á rjúpa að hanga lengi? Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið Veiði Margir búnir að ná jólarjúpunni Veiði Eystri Rangá komin yfir 1000 laxa Veiði Gunnar Bender stendur Veiðivaktina enn eitt sumarið Veiði Rjúpan kostar allt að 5000 krónur stykkið Veiði Hraunsfjörður er að gefa fína veiði Veiði