Diego Forlan: Ég er með tilboð frá Inter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2011 22:45 Diego Forlan. Mynd/Nordic Photos/Getty
Diego Forlan, framherji Atletico Madrid og landliðs Úrúgvæ, segist vera með tilboð frá ítalska félaginu Inter og talar jafnframt um það að hann sé spenntur fyrir því að fá að spreyta sig í ítalska boltanum. Diego Forlan er væntanlega ætlað að fylla í skarð Samuel Eto'o sem Inter er um það bil að selja til rússneska félagsins Anzhi Makhachkala. „Ég hef fengið tilboð frá Nerazzurri [Inter]. Það væri draumi líkast að komast til Mílanó og fá að spila fyrir Inter," sagði Forlan í viðtali hjá ítalska blaðinu La Gazzetta dello Sport. Forlan segir einnig að tyrkneska félagið Galatasaray sé í samkeppni við Inter. „Eina tyrkneska liðið sem hefur haft samband vð mig er Galatasaray. Þeir eru frábært félag en ég hef ekkert heyrt frá Besiktas og Fenerbahce. Það er ekki mikill munur peningalega á Tyrklandi og restinni af Evrópu. Tyrkland er frábært land og það væri gaman að spila þar einhvern daginn," sagði Diego Forlan. Diego Forlan er orðinn 32 ára gamall en hann hefur spilað með Atletico Madrid frá árinu 2007 og er með 74 mörk í 134 leikjum í spænsku deildinni á þeim tíma. Forlan lék áður með Independiente í Argentínu (1997–2001), Manchester United í Englandi (2001–2004) og Villarreal á Spáni (2004–2007).
Ítalski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira