Umfjöllun: ÍA aftur í deild þeirra bestu Stefán Árni Pálsson á ÍR-velli skrifar 16. ágúst 2011 17:37 Hjörtur Júlíus Hjartarson, leikmaður ÍA, skoraði í kvöld. Mynd/Valli
ÍA komst í kvöld aftur í efstu deild karla eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við ÍR í 1. deildinni í kvöld. Stigið dugði Skagamönnum til að komast upp í Pepsi-deildina. Heimamenn voru ferskir í byrjun leiksins og ætluðu greinilega að selja sig dýrt gegn toppliðinu. Eftir tæplega hálftíma leik komust ÍR-ingar yfir í leiknum þegar Árni Freyr Guðnason skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu, sérstaklega vel gert hjá framherjanum. Skagamenn fóru heldur betur í gang eftir markið og sóttu án afláts. Á 38. mínútu fengu gestirnir vítaspyrnu þegar Tómas Agnarsson braut á Fannari Frey Gíslasyni innan teigs og réttilega dæmd vítaspyrna. Íþróttafréttamaðurinn, Hjörtur Júlíus Hjartarson, steig á punktinn en lét Róbert Örn Óskarsson í marki ÍR verja frá sér. Skagamenn héldu áfram að sækja stíft að marki ÍR-inga en náðu ekki að skora fyrir leikhléið. Staðan því 1-0 í hálfleik. Það var aðeins eitt lið á vellinum í síðari hálfleik og Hjörtur Júlíus náði að bæta fyrir mistökin í byrjun hálfleiksins þegar hann potaði boltanum í netið eftir hornspyrnu. Skagamenn hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk í leiknum en þeir Hjörtur og Stefán Þórðarson fengu urmul af færum sem þeir náðu ekki að nýta. Skagamenn eru því komnir í efstu deild og eiga það svo sannarlega skilið. Liðið lék þar síðast árið 2008, en félagið er eitt sigursælasta lið frá upphafi í efstu deild. Það verður gaman að fara á Skagann á næsta tímabili og sjá leik í efstu deild. Til hamingju Skagamenn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Rekinn án skýringa og ætlar í mál Handbolti Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Íslenski boltinn Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Körfubolti Mikael sá rautt eftir áflog í göngunum Fótbolti Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Fótbolti Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Golf Fleiri fréttir Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Gylfi missir af upphafsleiknum Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Sjá meira