Veiði

Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar

Karl Lúðvíksson skrifar
Nú liggja fyrir tölur frá Landsambandi Veiðifélaga á vefnum www.angling.is og staðan er að breytast hratt á þessum vikum þar sem Rangárnar eru að koma sterkar inn. Það veiddust yfir 1200 laxar í þeim í þar síðustu viku og staðan núna er mjög svipuð.

Það má reikna með að Norðurá verði nálægt lokatölu 2010 en það verður að segjast eins og er að það vantar allmikið uppá Miðfjarðará og Þverá/Kjarrá, en það er líka ósanngjarn samanburður því þessar ár voru með hreint út sagt frábæra veiði í fyrra. Það ber alls ekki að skilja það sem svo að árið núna sé lélegt, heldur er þetta það sem má kalla venjulegt.

Langá á mikið inni og það má reikna með að dagarnir 20-29. ágúst gætu skilað um 500-600 löxum á land þar sem maðkurinn fer í ánna þann 20. ágúst og áin er full af laxi og í mikið betra vatni heldur en 2010 og 2009. En fyrir þá sem vilja skoða listann í heild þá má finna hann á þessum link: http://angling.is/is/veiditolur/

Hér er svo topp 10 listinn:



VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2010
Eystri-Rangá17. 8. 20112557186280
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.17. 8. 20112160206210
Norðurá17. 8. 20111950142279
Blanda17. 8. 20111817162777
Þverá + Kjarará17. 8. 20111528143760
Miðfjarðará17. 8. 20111504104043
Selá í Vopnafirði17. 8. 2011140472065
Haffjarðará17. 8. 2011124561978
Langá17. 8. 20111207122235
Elliðaárnar.17. 8. 2011102061164









×