Umfjöllun: Stjarnan skoraði fimm í Laugardalnum Benedikt Bóas Hinriksson á Laugardalsvelli skrifar 15. maí 2011 00:01 Mynd/Valli
Stjarnan vann sinn anna leik á útivelli í röð er liðið gerði sér lítið fyrir og vann 5-2 sigur á Fram sem tókst þó að skora sín fyrstu mörk á Íslandsmótinu í kvöld. Það höfðu ekki margir trú á því að þessi leikur yrði jafn skemmtilegur og raun ber vitni. Fyrri hálfleikur var magnaður þar sem Arnar Gunnlaugsson var í aðalhlutverki. Arnar var gjörsamlega óstöðvandi og skoraði tvö mörk og lék við hvurn sinn fingur. Sá gamli er enn í fantaformi og hló oft af varnarmönnum Stjörnunnar. Nema kannski þegar hann lenti í kapphlaupi við Daníel Laxdal. Þá hló Jóhann að Arnari. Fyrri hálfleikur var eign Arnars og Framarar voru verðskuldað 2-1 yfir í hálfleik. Fyrst skoraði Arnar laglegt mark, boltanum var spyrnt til baka til Ögmundar í markinu sem nelgdi boltanum til Arnars sem skoraði fallegt mark. Hann átti eftir að gera alveg helling áður en hann lét vaða en sýndi enn og aftur töfrana sem eru í þessum fallega vinstri fót. Halldór Orri jafnaði reyndar leikinn í milli, með laglegu marki en Arnar sá til að Fram færi með forystu í hálfleik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Sendi Magnús Karl í vitlaust horn og allt. En Arnar hafði fengið einhvert högg á sig og þurfti að fara af velli og þá voru góð ráð dýr. Þorvaldur Örlygsson sendi Hlyn Atla inná. Með fullri virðingu fyrir honum er hann enginn Arnar Gunnlaugs. Fram liðið hrundi og Stjarnan vann síðari hálfleikinn 4-0. Þetta var hreinlega aftaka, niðurlæging og jafnvel smá grín. Allt gekk upp á meðan einfaldir hlutir eins og að taka á móti boltanum vafðist fyrir leikmönnum Fram. Til að toppa allt saman skoraði Jón Guðni Fjóluson sjálfsmark. Síðari hálfleikur snérist upp í martröð og enginn steig upp til að taka ábyrgð. Enginn reyndi, enginn gerði einhvern veginn neitt. Menn bara stóðu og létu niðurlægja sig. Enda voru þeir fegnir þegar dómari leiksins flautaði af. Það skal þó benda á að ef Tómas Leifsson og Ívar Björnsson hefðu verið með toppstykkið rétt skrúfað á hefðu Framarar getað náð einhverju út úr þessum leik. Báðir klúðruðu algjörum dauðafærum þar sem kæruleysið fór með þá. Ívar leit hrikalega illa út í sínu færi en hann reyndi að leika á Magnús, sem var búinn að lesa hreyfinguna hans árið 2002, og reyndi síðan að fiska víti með því að fleygja sér í jörðina. Gjörsamlega glórulaus ákvörðun vitandi að það séu sjónvarpsmyndavélar og harðir gagnrýnendur leikaraskapsins út um alla internetveggi. Hann fær væntanlega einhver skammarverðlaun frá Harmageddon - það hlýtur bara að vera. Það höfðu ekki margir trú á því að þessi leikur yrði jafn skemmtilegur og raun ber vitni. Fyrri hálfleikur var magnaður þar sem Arnar Gunnlaugsson var í aðalhlutverki. Arnar var gjörsamlega óstöðvandi og skoraði tvö mörk og lék við hvurn sinn fingur. Sá gamli er enn í fantaformi og hló oft af varnarmönnum Stjörnunnar. Nema kannski þegar hann lenti í kapphlaupi við Daníel Laxdal. Þá hló Jóhann að Arnari. Fyrri hálfleikur var eign Arnars og Framarar voru verðskuldað 2-1 yfir í hálfleik. Fyrst skoraði Arnar laglegt mark, boltanum var spyrnt til baka til Ögmundar í markinu sem nelgdi boltanum til Arnars sem skoraði fallegt mark. Hann átti eftir að gera alveg helling áður en hann lét vaða en sýndi enn og aftur töfrana sem eru í þessum fallega vinstri fót. Halldór Orri jafnaði reyndar leikinn í milli, með laglegu marki en Arnar sá til að Fram færi með forystu í hálfleik þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Sendi Magnús Karl í vitlaust horn og allt. En Arnar hafði fengið einhvert högg á sig og þurfti að fara af velli og þá voru góð ráð dýr. Þorvaldur Örlygsson sendi Hlyn Atla inná. Með fullri virðingu fyrir honum er hann enginn Arnar Gunnlaugs. Fram liðið hrundi og Stjarnan vann síðari hálfleikinn 4-0. Þetta var hreinlega aftaka, niðurlæging og jafnvel smá grín. Allt gekk upp á meðan einfaldir hlutir eins og að taka á móti boltanum vafðist fyrir leikmönnum Fram. Til að toppa allt saman skoraði Jón Guðni Fjóluson sjálfsmark. Síðari hálfleikur snérist upp í martröð og enginn steig upp til að taka ábyrgð. Enginn reyndi, enginn gerði einhvern veginn neitt. Menn bara stóðu og létu niðurlægja sig. Enda voru þeir fegnir þegar dómari leiksins flautaði af. Það skal þó benda á að ef Tómas Leifsson og Ívar Björnsson hefðu verið með toppstykkið rétt skrúfað á hefðu Framarar getað náð einhverju út úr þessum leik. Báðir klúðruðu algjörum dauðafærum þar sem kæruleysið fór með þá. Ívar leit hrikalega illa út í sínu færi en hann reyndi að leika á Magnús, sem var búinn að lesa hreyfinguna hans árið 2002, og reyndi síðan að fiska víti með því að fleygja sér í jörðina. Gjörsamlega glórulaus ákvörðun vitandi að það séu sjónvarpsmyndavélar og harðir gagnrýnendur leikaraskapsins út um alla internetveggi. Hann fær væntanlega einhver skammarverðlaun frá Harmageddon - það hlýtur bara að vera.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport Spænsku stórliðin verða ekki með í stemningunni Fótbolti Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Golf Fleiri fréttir Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Sjá meira