Fokið í skattaskjól á Seychelleseyjum 31. mars 2011 10:58
Norrænu ríkin, þ.e. Ísland, Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð auk Færeyja og Grænlands undirrituðu í vkunni samkomulag við yfirvöld á Seychelleseyjum um skipti á skattaupplýsingum. Samkomulagið er enn einn áfanginn í viðamiklu starfi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar til að sporna gegn skattaflótta til annarra landa. Fjallað er um málið á vefsíðunni norden.org. Þar segir að samningurinn veitir skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla einstaklinga sem reyna að komast hjá því að greiða tekju- og fjármagnsskatta og afhjúpar einnig tekjur sem ekki hafa verið gefnar upp til skatts í heimalandinu. Samningana þarf að gera tvíhliða þar sem þeir krefjast samþykkis þjóðþinga í hverju landi. Frá því að viðræður hófust vorið 2007 hafa eftirfarandi ríki gert samkomulag við Norðurlönd um upplýsingaskipti: Andorra, Angvilla, Antígva og Barbúda, Arúba, Bahamaeyjar, Belís, Bermúda, Bresku Jómfrúaeyjar, Caymaneyjar, Cookseyjar, Dominíka, Gíbraltar, Grenada, Guernsey, Mön, Jersey, Líbería, Marshalleyjar, Mónakó, Montserrat, Hollensku Antillur, Samóa, San Marínó, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsía, Turks- og Caicoseyjar, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar og Vanúatú. Norðurlönd eru því í lykilaðstöðu í baráttunni gegn skattaflótta í heiminum, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira