Gaddafi situr ofan á gullfjalli 22. mars 2011 07:58
Þrátt fyrir að alþjóðasamfélagið hafi skorið Muammar Gaddafi og stjórn hans í Líbíu frá fjármunum sínum erlendis og fryst bankareikninga hefur Gaddafi enn aðgang að miklum fjármunum heima fyrir enda má segja að hann sitji á gullfjalli. Með því getur hann fjármagnað her sinn og málaliða jafnvel árum saman. Fjallað er um málið í Financial Times sem aftur vitnar í gögn frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Samkvæmt gögnunum voru nær 144 tonn af gulli til staðar í seðlabanka Líbíu þegar uppreisnin hófst þar í landi. Flestar þjóðir geyma gullforða sinn í bönkum í London, New York eða Sviss en gullforði Líbíu er geymdur innan landamæra landsins. Ekki er vitað hvar gullforði Gaddafi er niðurkominn og jafnvel talið að Gaddafi hafi flutt hann til borgarinnar Sepha sem liggur nálægt landamærunum að Tjad og Niger. Miðað við gullverð dagsins er verðmæti þessa gullforða Gaddafi um 6,5 milljarðar dollara eða um 740 milljarða kr. Financial Times telur að þessi gullforði geti haldið stríðsrekstri Gaddafi gangandi um langan tíma svo framarlega sem hann finnur kaupendur að þessu gulli.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira