Telur silfur vera betri fjárfestingarkost en gull 16. september 2010 09:41
Heimsmarkaðsverð á gulli hefur aldrei verið hærra í sögunni en verðhækkanir á gulli hafa valdið því að silfur hefur einnig hækkað í verði og hefur ekki verið hærra síðan árið 2008. Greinandi telur að silfur sé nú betri fjárfestingarkostur en gull. Fjallað er um málið á börsen.dk en verð á gulli stendur nú í tæpum 1,268 dollurum á únsuna og búast flestir við að það fari brátt lækkandi. Hið sama gildir ekki um silfur en verð þess stendur í rúmlega 20 dollurum á únsuna. Carsten Fritsch greinandi hjá þýska bankanum Commerzbank segir að silfur sé orðið samkeppnishæfara en gull á heimsmarkaðinum. Silfur hafi rofið 20 dollara múrinn í upphafi vikunnar og verð þess gæti haldið áfram að hækka. Fritsch bendir á að það séu fjárfestingar í silfri sem keyri verðhækkanir á því í augnablikinu. Um 50% af því silfri sem unnið er í heiminum er notað í iðnaði á móti aðeins 10% af því gulli sem unnið er. „Í ljósi þess er silfur betri fjárfestingakostur en gull," segir Fritsch.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira