Actavis með besta tilboðið í Ratiopharm 11. mars 2010 08:53
Samkvæmt frétt á Reuters er Actavis með besta tilboðið í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm enn sem komið er. Tilboð keppinauta Actavis munu vera nokkuð frá því verði sem eigendur Ratiopharm, Merckle-fjölskyldan, vill fá fyrir þessa eign sína.Samkvæmt Reuters mun tilboð Actavis nema 3 milljörðum evra, eða um 522 milljarðar kr., en það er verðið sem Merckle fjölskyldan telur ásættanlegt. Hinsvegar gæti mikil skuldsetning Actavis dregið úr möguleikum þess á að kaupa Ratiopharm.Actavis keppir um Ratiopharm við bandaríska lyfjarisann Pfizer og Teva sem er stærsta samheitalyfjafyrirtæki heimsins. Þessi þrjú fyrirtæki hafa öll sent inn tilboð og hafa kynnt þau fyrir stjórn Ratiopharm.Reiknað er með að Actavis, Pfizer og Teva leggi fram lokatilboð sín fyrir næstu mánaðarmót.Eins og áður hefur komið fram styður Deutsche Bank við Actavis í viðleitninni við að kaupa Ratiopharm. Actavis skuldar um 5 milljarða evra og þar af heldur Deutsche Bank á rúmum 4 milljörðum. Reuters nefnir aftur að sennilega muni Deutsche Bank breyta töluverðu af skuldunum í hlutabréf ef af kaupunum á Ratiopharm verður.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira