FIFA leiðréttir Dómaranefnd KSÍ - víti Halldórs Orra var ólöglegt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2010 21:00 Halldór Orri Björnsson.
Dómaranefnd KSÍ hafði ekki rétt fyrir sér þegar hún gaf frá sér yfirlýsingu um að vítið, sem Halldór Orri Björnsson tók fyrir Stjörnuna á móti FH í 20. umferð Pepsi-deildar karla, hafi verið löglegt. Dómaranefnd FIFA var send „klippa" af atvikinu og hefur hún sent KSÍ sitt álit. Hér á eftir fylgir íslensk þýðing á svarinu sem barst frá Dómaranefnd FIFA en það er hægt að sjá vítið í "Brot af því Besta" inn á Vísi eða með að smella hér. „Þetta er ekki löglegt! Leikmaðurinn klárar atrennu sína - og þykist síðan ætla að skjóta í þeim tilgangi að blekkja markvörðinn. Það er ekki löglegt - honum er heimilt að taka „gabbhreyfingar" í atrennu sinni, en alls ekki þegar hann hefur lokið atrennunni. Því bar að endurtaka vítaspyrnuna (af því að hann skoraði) - og áminna leikmanninn fyrir óíþróttamannslega framkomu". Þessari leiðréttingu er hér með komið á framfæri enda skylt að hafa það sem sannara reynist. Nefndin biðst velvirðingar á hvatvísi sinni," segir í frétt á heimasíðu KSÍ. Þóroddur Hjaltalín Jr. dæmdi vítið gilt og það gæti skipt máli i baráttu Halldórs Orra um markakóngstitilinn í Pepsi-deildinni. Þetta var þrettánda mark hans á tímabilinu en hann hefur aðeins skorað einu marki minna en Alfreð Finnbogason sem verður í leikbanni í lokaumferðinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Handbolti Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Körfubolti Uppgjörið: ÍR - Tindastóll 90-98 | Stólarnir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Körfubolti Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Fótbolti Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti Hætta með maraþonhlaup á HM í frjálsum Sport Havertz hetjan í steindauðri skák Fótbolti Fleiri fréttir „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Sjá meira
Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Körfubolti
Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Körfubolti