Grikkir búnir að ná samkomulagi við AGS og Evrópusambandið 2. maí 2010 09:52 Það hafa verið óeirðir í Grikklandi vegna bágs efnahagsástands.
George Papandreou forsætisráðherra Grikklands greindi frá því í morgun að samkomulag hafi tekist við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið um risavaxna efnahagsaðstoð við landið. Þetta kom fram á neyðarfundi ríkisstjórnarinnar sem sjónvarpað var um Grikkland í morgun. Búist er við að ríkisstjórn hans greini frá áætlunum um mikinn niðurskurð í útgjöldum ríkisins út árið 2012. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið munu samanlagt lána Grikkjum 159 milljarða dollara eða um 21 þúsund milljarða íslenskra króna. Forsætisráðherrann sagði í sjónvarpsávarpi sínu í morgun að gríska þjóðin yrði að færa miklar fórnir til að koma í veg fyrir algert efnahagshrun. Fjármálaráðherrar evrusvæðisins koma saman seinna í dag til að leggja blessun sína yfir samkomulagið. En verkalýðsfélög í Grikklandi hafa boðað til verkfalla á miðvikudag til að mótmæla björgunaráætluninni.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira