Pfizer með hærra tilboð en Actavis í Ratiopharm 3. mars 2010 08:37
Bandaríski lyfjarisinn Pfizer ætlar að leggja fram hærra tilboð en Actavis í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Samkvæmt heimildum Reuters nemur tilboð Pfizer 3 milljörðum evra en tilboð Actavis hljóðaði upp á tæpa 3 milljarða evra. Þetta tilboð Pfizer kemur á óvart enda koma fram í fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum síðan að Pfizer hefði hætt við að reyna að kaupa Patiopharm. Í frétt Reuters segir að með þessu muni salan á Ratiopharm líklega frestast fram til mánaðarloka. Áður hafði verið sagt að gengið yrði frá málinu í þessari viku.Reuters hefur heimildir fyrir því að Pfizer hafi verið beðið um að leggja fram tilboð og kynna það fyrir stjórn Ratiopharm. Önnur heimild segir að Pfizer gæti allt eins hætt við kaupin á ný.Talið var að Actavis og Teva frá Ísrael myndu berjast um Ratiopharm og voru líkur taldar góðar á því að Actavis myndi vinna þá baráttu eins og áður hefur komið fram hér á síðunni. Einkum vegna þess að Deutsche Bank styður við bakið á Actavis í málinu.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira