Krasic fékk tveggja leikja bann fyrir leikaraskap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2010 15:30 Milos Krasic. Mynd/AP
Serbneski leikmaðurinn Milos Krasic hjá Juventus var í dag dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að fiska víti á óheiðarlegan hátt í markalausu jafntefli á móti Bologna um helgina. Ítalska knattspyrnusambandið studdist við sjónvarpsupptökur af leiknum þegar dæmt var í málinu en Krasic hafði verið harðlega gagnrýndur í ítölskum fjölmiðlum síðustu tvo daga. Milos Krasic fiskaði víti á 34. mínútu leiksins á móti Bologna þegar hann datt í grasið eftir að hafa fengið litla sem enga snertingu frá Daniele Portanova, varnarmanni Bologna. Réttlætinu var kannski fullnægt þegar Emiliano Viviano, markvörður Bologna, varði vítið frá Vincenzo Iaquinta. Það er hægt að sjá atvikið með því að smella hér en það gerist þegar um mínúta eru búin af myndbandinu. Milos Krasic verður því ekki með Juventus í stórleiknum á móti AC Milan á laugardaginn kemur. Hann mun einnig missa af leik liðsins á móti Cesena sem fer fram 7. nóvember. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikmaður er dæmdur í leikbann fyrir leikaraskap í ítölsku deildinni.
Ítalski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti