Ferrari bílar seljast sem aldrei fyrr í Noregi 7. júlí 2010 07:17
Sala á Ferrari bílum í Noregi hefur aldrei verið meiri en í fyrra og það sem af er þessu ári. Autostrada Sport er með umboðið fyrir Ferrari bíla í Noregi og samkvæmt upplýsingum frá umboðinu voru 53 Ferrari bílar seldir í Noregi á síðasta ári eða rúmlega einn á viku að meðaltali. Ferrari er einn dýrasti fjöldaframleiddi bíll í heiminum og kostar stykkið af honum um 60 milljónir króna. Þetta þýðir að Ferrari bílar hafa selst fyrir rúmlega þrjá milljarða króna í Noregi í fyrra. Í umfjöllun vefsíðunnar e24 um málið segir að þetta sé sölumet. Samkvæmt upplýsingum frá Autostrada Sport eru allar líkur á að sölumetið verði slegið í ár en þegar er búið að selja yfir 20 Ferrari það sem af er árinu. Salan á Ferrari bílum í Noregi sýnir enn og aftur að landið hefur sloppið betur en flest önnur lönd út úr kreppunni. Það er hinsvegar spurning um ánægjuna sem eigendur þessara bíla hafa af þeim í Noregi þar sem óvíða eru meiri hraðatakmarkanir á vegum en þar í landi.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira