Íslenski boltinn

Ronny Johnsen: Framtíð íslenska fótboltans er björt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Johnsen fylgist með landsliðsæfingu Norðmanna.
Johnsen fylgist með landsliðsæfingu Norðmanna. Fréttablaðið/Pjetur
Ronny Johnsen, fyrrum leikmaður Manchester United, er staddur hér á landi í tengslum við leik Íslands og Noregs í undankeppni EM 2012. Johnsen starfar sem sérfræðingur fyrir norska sjónvarpsstöð og hitti Fréttablaðið á hann í gær.

„Íslenska liðinu hefur yfirleitt gengið vel gegn Noregi og náð góðum úrslitum. Ég á von á miklum bardaga fyrst og fremst."

Norska liðinu hefur ekki gengið vel undanfarin ár en Johnsen telur engu að síður raunhæft fyrir liðið að komast í úrslitakeppni EM nú.

„Fyrir suma leikmenn er þetta síðasti möguleikinn til að upplifa stórmót. Ég tel að þeir séu reiðubúnir að takast á við þessa áskorun. En það er alltaf erfitt að spila gegn Íslandi og svo eigum við Portúgal í næsta leik. Þetta er því nokkuð erfið byrjun og það er mikilvægt að byrja vel."

Johnsen finnst mikið til þess koma hversu marga unga og efnilega leikmenn Ísland á. „Það er áhugavert hvað Íslandi hefur tekist að framleiða mikið af góðum leikmönnum. Ekki bara í dag. Ég var lengi í Englandi og það voru margir íslenskir leikmenn þar þá og eru enn nú. Nú síðast las ég um Íslendinginn [Gylfa Þór Sigurðsson] sem Reading seldi til Hoffenheim í Þýskalandi fyrir sex milljónir punda," sagði Johnsen.

„Þetta lítur því vel út fyrir Ísland. Það fara öll lið í gegnum sín kynslóðaskipti og ég verð að segja að framtíð Íslands er björt."

Hann segir að það sé ýmislegt hægt af læra af vinnubrögðum íslensku knattspyrnuhreyfingarinnar. „Ég hef aðeins kynnt mér hvernig staðið er að starfi fyrir unga leikmenn og ég held að það væri hægt að taka sér margt af því til fyrirmyndar í Noregi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×