Danskur ráðherra fékk 14 milljónir í styrki frá ESB 1. desember 2010 14:45
Henrik Höegh landbúnaðarráðherra Danmerkur þáði rúmlega 700.000 danskar kr. eða rúmlega 14 milljónir kr. í landbúnaðarstyrki frá ESB á síðasta ári. Hann hefur einnig sótt um svipaða styrki í ár en hann rekur stórt bú á Lollandi. Fjallað er um málið í Jyllands Posten en fyrrgreindar upplýsingar komu fram í svari við fyrirspurn á danska þinginu. Árið 2008 þurfti Höegh að láta sér nægja rúmar 11 milljónir í styrkjum frá ESB. Í umræðum um málið á þinginu sagði Nick Hækkerup varaformaður Jafnaðarmannaflokksins að það valdi áhyggjum að á sama tíma og danska stjórnin hafi þá opinberu stefnu að draga úr styrkjum til landbúnaðar sé landbúnaðaráðherra að fá síaukna styrki frá ESB. Í svarinu kemur fram að á árunum 2001 til 2010 hafa danskir bændur fengið 88 milljarða danskra kr. eða um 1.800 milljarða kr. í landbúnaðarstyrki frá ESB.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira