Marco Van Basten: Ég skil ekki af hverju Leonardo fór til Inter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2010 12:30 Marco Van Basten. Mynd/Nordic Photos/Getty
Marco Van Basten, fyrrum leikmaður AC Milan, segist líta svo á málin að Brasilíumaðurinn Leonardo hafi svikið AC Milan með því að taka við sem þjálfari erkifjendanna í Inter Milan. Leonardo tók við starfinu af Rafael Benitez sem var rekinn en áður hafði Leonardo fengið sparkið hjá AC Milan. „Ég hef ekkert á móti Inter en það er bara ekki rétt að yfirgefa Rossoneri-fjölskylduna og ganga til liðs við Nerazzurri-fjölskylduna. Mér sjálfum myndi líða eins og ég væri að svíkja vini mínum. Ég skil ekki af hverju Leonardo fór til Inter," sagði Marco Van Basten en bætti síðan við: „Hann fór reyndar frá AC Milan undir slæmum kringumstæðum en það gerði ég ekki." Marco Van Basten hrósaði líka Svíanum Zlatan Ibrahimovic sem hefur verið líkt við Hollendinginn eftir frábæra frammistöðu sína með AC Milan liðinu. „Þetta er nýtt lið og það er fullt af hæfileikaríkum leikmönnum í liðinu. Liðið þarf samt að bæta sig enn frekar ef að það ætlar að fara að vinna á Ítalíu og í Evrópu. Ég var sannfærður um að Ibrahimovic myndi standa sig vel alveg eins og hann gerði hjá Juventus og Inter," sagði Van Basten. „Hann stóð sig meira segja vel á Spáni þrátt fyrir að liðið spilaði fótbolta sem hann er ekki vanur að spila og að hann lenti í útistöðum við þjálfarann," sagði Van Basten en Zlatan Ibrahimovic hefur skorað 13 mörk og gefið 9 stoðsendingar í 20 leikjum í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili með AC Milan.
Ítalski boltinn Mest lesið KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Körfubolti Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Handbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Fótbolti Leik lokið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Golf Fleiri fréttir „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Ólympíukóngurinn fjárfestir í skák eins og Haaland Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ancelotti gefur Neymar vonarglætu „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Fótboltamaður lést eftir skotárás á liðsrútu Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Sjá meira