Hætt við sölu á skemmtigörðum 17. nóvember 2010 06:00 Rekstur skemmtigarða er ekki alltaf dans á rósum. Eigandi Parques Reunidos á í basli með að losa sig við garðinn. Markaðurinn/AFP
Breski fjárfestingarsjóðurinn Candover hefur hætt við sölu á Parques Reunidos, spænsku móðurfélagi 69 afþreyingar- og skemmtigarða víða um heim. Meðal þeirra er BonBon-Land í Danmörku. Sjóðurinn vonaðist til að fá tvo milljarða evra, þrjú hundruð milljarða króna, fyrir Parques Reunidos. Nokkur tilboð bárust og voru þau öll undir væntingum, að sögn breska dagblaðsins Financial Times. Candover var á meðal helstu fjárfestingarsjóða Evrópu en lenti í vandræðum eins og önnur félög sem stunduðu skuldsettar yfirtökur í aðdraganda fjármálakreppunnar. Félagið gat ekki staðið við skuldbindingar og hafa stjórnendur þurft að segja upp sextíu manns frá áramótum og selja eignir til að forðast gjaldþrot. Á meðal helstu eigna Candover er hollenska iðnfyrirtækið Stork, sem félagið á með Eyri Invest, helsta hluthafa Marels og stoðtækjafyrirtækisins Össurar. - jab
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira