Andri : Við fundum nasaþefinn af sigrinum. Kristinn Páll Teitsson skrifar 14. júní 2010 23:10 Andri Marteinsson, þjálfari Hauka.
Andri Marteinsson, þjálfari Hauka, var að vonum svekktur eftir að lið hans tapaði niður 1-0 forskoti á 86. mínútu gegn Keflavík í kvöld en liðið var þá við það að vinna sinn fyrsta sigur í sumar. „Það er mjög sárt að tapa þessu svona. Við fundum nasaþefinn af því að landa sigri. Við höfum oft verið sjálfum okkur verstir en núna var ekkert slíkt í gangi, við náðum að setja mark á þá og halda okkur þéttum," sagði Andri. Mark Keflvíkinga var afar skrautlegt, en það skoraði Magnús Þórir Matthíasson þegar hann náði að skjóta úr afar þröngu færi og lauma boltanum framhjá Daða Lárussyni í marki Hauka. „Markið kemur úr engu, því er þetta mjög svekkjandi. Lukkudísirnar hljóta þó að fara að koma á okkar hlið, við höfum haft mikið fyrir þessu en þetta getur ekki haldið áfram að vera svona slysalegt," sagði Andri. Erfiðar aðstæður voru á Njarðtaksvelli, völlurinn var afar blautur og mikill vindur og var því oft erfitt að koma góðu spili á. „Við spiluðum vel úr þessum aðstæðum, það var mjög góður bolti spilaður oft á köflum," sagði Andri. Haukarnir eru enn sigurlausir en eru þó með þrjú stig við botninn, en þeir voru þó nálægt því að ná sigri í þetta sinn. „Spilið okkar hefur verið að lagast og við höfum verið að spila vel síðustu þrjá leiki. Það eru alltaf jákvæðir punktar sem við getum tekið með okkur. Við þurfum þó að fara að spýta aðeins meira í lófana til að láta gæfuna snúast okkur í hag. Ekki alltaf vera að taka jákvæða punkta úr leikjum sem tapast eða gerum jafntefli í, " sagði Andri.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Enski boltinn Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Stinningskaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana Körfubolti Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Íslenski boltinn Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Fótbolti Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: Keflavík 88-77 KR | Tene-ferð þjálfarans hafði engin áhrif Körfubolti Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals Sjá meira