Hver Dani á tæpar 4 milljónir í sparifé 28. maí 2010 10:07
Frændur vorir Danir hafa verið iðnir við að spara frá því að fjármálakreppan skall á landinu árið 2008. Nú á hver Dani að meðaltali 179.000 danskar kr. inn á bankareikningum eða tæplega 4 milljónir kr.Fjallað er um málið á börsen.dk. Þar segir að samkvæmt nýjum tölum frá danska seðlabankanum, Nationalbanken jukust bankainnistæður almennings í Danmörku um tæpa 12 milljarða danskra kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins og nema nú 773,5 milljörðum danskra kr. eða rúmlega 16.600 milljörðum kr.Fram kemur í frétt börsen.dk að frá því í september 2008 hafi innistæðurnar vaxið um 83,2 milljarða danskra kr. Las Olsen hagfræðingur hjá Danske Bank bendir á í þessu sambandi að til séu nokkrir ofurríkir Danir sem hífa meðaltalstöluna upp.Danir spara nú fé sitt sem aldrei fyrr og það bætir stöðuna að þeir eyða minna en áður samhliða því að laun hafa hækkað. Þá telja Danir betra að hafa fjármuni sína inni á reikningum heldur en að leggja í fjárfestingar í því óvissuástandi sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum. Las Olsen telur að innistæður Dana í heild séu nú um 60 milljörðum danskra kr. meiri en í eðlilegu árferði
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira